Rétt í þessu var tilkynnt um tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026.
Frá Íslandi eru tilnefnd þau Eva Rún Snorradóttir og Jón Kalman Stefánsson. RSÍ óskar þeim innilega til hamingju!
Eva Rún Snorradóttir, Eldri konur, skáldsaga, Benedikt, 2024.
„Eldri konur er saga af jaðrinum. Jaðarsetning aðalpersónunnar felst þó hvorki í samkynhneigð hennar né stéttastöðu, þótt hvort tveggja leggi sitt á vogarskálarnar, heldur skömminni sem hún lifir með og varnar henni aðgangi að nánd og heilbrigðum tilfinningasamböndum. Aum sjálfsvirðing sögukonunnar storkar áreiðanleika frásagnarinnar og beinir athyglinni að bilinu milli sögunnar sem við segjum af okkur sjálfum, og sögunni sem blasir við öðrum. Útkoman er sundlandi stúdía á því hvernig auðmýking og reisn vega salt innra með manneskjunni.“
Rökstuðningur dómnefndar í heild.
Jón Kalman Stefánsson: Himintungl yfir heimsins ystu brún, skáldsaga, Benedikt, 2024.
„Haustið 1615 voru framin svokölluð Spánverjavíg á Íslandi; fjöldamorð á baskneskum hvalveiðimönnum þar sem íslenskir bændur og sjómenn fóru að skipreika mönnum og drápu á hrottafenginn hátt, að undirlagi sýslumanns Ísafjarðarsýslu. Margt er á reiki um staðreyndir þessara atburða en meginheimildin var lengi vel rit alþýðufræðimannsins Jóns lærða Guðmundssonar (1574-1658): Sönn frásögn af spanskra manna skipbrotum og slagi. Jón lærði talaði afdráttarlaust máli Baskanna og hafði ritið alvarlegar afleiðingar fyrir hann. Jón Kalman notar þessa sögulegu atburði sem útgangspunkt í hugleiðingum sögumanns skáldsögunnar, séra Péturs, um mennskuna, ástina og ábyrgðina en þó fyrst og fremst um mátt hins ritaða orðs.“
Rökstuðningur dómnefndar í heild.
Öll tilnefnd verk og rökstuðningur dómnefndar má sjá hér.
Á myndinni sjást þau Eva Rún og Einar Kári Jóhannsson, ritstjóri hjá Benedikt, sem tók við blómvendi fyrir hönd Jóns Kalmans.


