Á sumardaginn fyrsta voru Einari Má Guðmundssyni veitt Verðlaun Jóns Sigurðssonar árið 2026. Einar tók við verðlaununum í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á Hátíð Jóns Sigurðssonar. Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, setti hátíðina og afhenti verðlaunin.
Í rökstuðningi segir: „Að mati forsætisnefndar Alþingis hefur Einar Már Guðmundsson lagt ríkulegan skerf af mörkum til að styrkja tengsl Danmerkur og Íslands. Einar Már dvaldi í Danmörku við nám og störf og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir ritstörf sín, meðal annars Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, Norrænu bókmenntaverðlaunin og Verðlaun Karenar Blixen. Einar Már er mikill sagnamaður með ljóðrænan og kraftmikinn stíl sem nýtur sérstakrar hylli og virðingar í Danmörku og er framlag hans til bókmennta og kynningar íslenskrar menningar í Danmörku þakkarvert. Fyrir það hlýtur Einar Már Guðmundsson Verðlaun Jóns Sigurðssonar árið 2026.“
Rithöfundasambandið óskar Einari Már til hamingju með afar verðskuldaðan heiður!



