Einar Már hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar

Á sumardaginn fyrsta voru Einari Má Guðmundssyni veitt Verðlaun Jóns Sigurðssonar árið 2026. Einar tók við verðlaununum í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á Hátíð Jóns Sigurðssonar. Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, setti hátíðina og afhenti verðlaunin. Í rökstuðningi segir: „Að mati forsætisnefndar Alþingis hefur Einar Már Guðmundsson lagt ríkulegan skerf af mörkum til að styrkja tengsl Danmerkur […]

Aðalsteinn Ásberg gerður að heiðursfélaga

Á aðalfundi í gærkvöldi lagði stjórn RSÍ það til að Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson yrði gerður að heiðursfélaga og var það samþykkt með dynjandi lófataki fundargesta. Aðalsteinn Ásberg hefur lengst allra sinnt formennsku í Rithöfundasambandinu. Hann hefur unnið sem blaðamaður, útvarpsþulur og textasmiður á auglýsingastofu. Hann var einn af frumkvöðlum tónlistarfélagsins Vísnavina og var í hljómsveitinni […]