Search
Close this search box.

Brynjólfur Þorsteinsson handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör

Brynjólfur Þorsteinsson handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör og Katín Anna Gustavsdóttir, sem var hlutskörpust í ljóðakeppni grunnskólanna.
Brynjólfur Þorsteinsson handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör og Katín Anna Gustavsdóttir, sem var hlutskörpust í ljóðakeppni grunnskólanna.

Ljóðstafur Jóns úr Vör var afhentur í 17. sinn við hátíðlega athöfn í Salnum á afmælisdegi skáldsins þann 21. janúar. Alls bárust 302 ljóð í keppnina en jafnframt voru úrslit í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs kunngjörð en 170 ljóð bárust frá grunnskólabörnum.

Handhafi Ljóðstafsins árið 2019 er Brynjólfur Þorsteinsson sem fæddur er 1990 en um ljóð hans Gormánuður segir dómnefnd m.a.: „…dregur fram íslenskan hversdag sem birtist dularfullur og margræður, þar sem samruni náttúru og líkama myndar óljós og áhugaverð mörk milli heima“.

Gormánuður

allir hrafnar eru gat

líka þessi sem krunkar
uppi á ljósastaur

eins og brot
í himingrárri tönn

sjóndeildarhringurinn nakin tré
skorpin vör

pírðu augun
einblíndu á fjaðursortann

það glittir í úf

allir hrafnar eru gat
og innvolsið uppdráttur að morgundegi

líka í þessum sem krunkar
uppi á ljósastaur

lestu hann
með vasahníf og opinn munn

hjartað springur
eins og ber undir tönn

bragðið er svart

eftir Brynjólf Þorsteinsson handhafa Ljóðstafsins 2019

Í öðru sæti var Margrét Lóa Jónsdóttir fyrir ljóðið Allt sem lifir deyr og þriðja sætið hlaut Elías Knörr fyrir ljóðið Sunnudögum fækkar með sérhverri messu! Sérstaka viðurkenningu hlutu auk þess ljóðskáldin Eyrún Ósk Jónsdóttir, Dagur Hjartarson, Arndís Þórarinsdóttir, Vilhjálmur B. Bragason, Hjörtur Marteinsson og Björk Þorgrímsdóttir.

Rithöfundasamband Íslands óskar Brynjólfi og öðrum verðlauna- og viðurkenningahöfum innilega til hamingju!

Hlutskörpust í grunnskólakeppninni var Katrín Valgerður Gustavsdóttir sem var verðlaunuð fyrir ljóðið Súðavík en hún er nemandi í 10. bekk Kárnsesskóla.

Dómnefnd skipuðu Bjarni Bjarnason formaður, Ásdís Óladóttir og Ásta Fanney Sigurðardóttir.

Rökstuðningur

Rökstuðningur dómnefndar um ljóðið Gormánuður eftir Brynjólf Þorsteinssonar handhafa Ljóðstafs Jóns úr Vör 2019:
„Vinningsljóðið í keppninni um Ljóðstaf Jóns úr Vör 2019 dregur fram íslenskan hversdag sem birtist dularfullur og margræður, þar sem samruni náttúru og líkama myndar óljós og áhugaverð mörk milli heima. Skáldið fer með lesandann í tímaflakk með fyrsta orði en titillinn Gormánuður er upphafsmánuður vetrar og vísar til sláturtíðar samkvæmt forna norræna tímatalinu. Innvols dýrs verður uppdráttur að morgundegi sem er hugsanleg veðurspá í gömlum göldrum, við erum minnt á að einblína á fjaðursortann, stara inn í myrkrið, kryfja gat sem er munnur þar sem orðin myndast og þar lesum við í framtíðina með dauðanum sem bíður okkar, heyrum áminningu um brothætt líf eða ást sem sundrast jafn auðveldlega og ber undir tönn. Hið unga skáld fléttar listilega saman andstæðum þar sem ljós og sorti, fortíð og nútíð mynda meistaralega smíðaða heild sveipaða myndríkri dulúð.“
Ásdís Óladóttir, Ásta Fanney Sigurðardóttir.,Bjarni M. Bjarnason.

Jón úr Vör

Jón úr Vör fæddist á Vatneyri við Patreksfjörð 21. janúar 1917 en starfaði lengst af í Kópavogi þar sem hann var hvatamaður að stofnun bókasafnsins og síðar fyrsti bæjarbókavörður bæjarfélagsins. Jón starfaði að menningarmálum með ýmsum hætti, var til dæmis bæði bóksali og ritstjóri, en fyrst og fremst var hann brautryðjandi í íslenskri ljóðagerð. Fjölmargar ljóðabækur hans lifa með þjóðinni og ber þá helst að nefna óð hans til æskustöðvanna, ljóðabálkinn Þorpið. Jón úr Vör lést 4. mars árið 2000 og frá árinu 2002 hefur Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar afhent Ljóðstaf Jóns úr Vör á fæðingardegi skáldsins.

 

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email