Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin voru veitt á Bessastöðum að kvöldi 29. janúar. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhenti verðlaunin sem hafa verið veitt árlega allt frá árinu 1989.
Kristín Ómarsdóttir hreppti verðlaunin í flokki skáldverka fyrir bók sína, Móðurást: Draumþing, sem út kom hjá Máli og menningu. Í flokki barna- og ungmennabóka var það Rán Flygenring sem hlaut verðlaunin fyrir Tjörnina, en útgefandi hennar er Angústúra. Guðjón Friðriksson var verðlaunaður í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis, fyrir bókina Börn í Reykjavík sem Mál og menning gaf út.
Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, hlaut Stefán Máni fyrir bókina Dauðinn einn var vitni. Útgefandi er Sögur útgáfa.
Á myndinni sem fylgir færslunni sjást verðlaunahafarnir Guðjón, Rán og Stefán Máni ásamt Höllu Tómasdóttur og Guðrúnu Yrsu Ómarsdóttur, systur Kristínar, sem tók við verðlaununum fyrir hennar hönd.
Rithöfundasamband Íslands óskar verðlaunahöfunum innilega til hamingju með uppskeruna!