Search
Close this search box.

Birna Stefánsdóttir hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Birna Stefánsdóttir hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir handritið Örverpi, sem er hennar fyrsta ljóðabók. Benedikt útgáfa gefur út.

Alls bárust 77 óbirt ljóðahandrit í keppnina í ár en handrit eru send inn undir dulnefni. Reykjavík bókmenntaborg UNESCO hefur umsjón með verðlaununum sem hafa verið veitt frá árinu 1994 en árið 2004 var tekin upp sú nýbreytni að veita eingöngu verðlaun fyrir ljóðahandrit. Verðlaunin nema einni milljón króna.

Birna Stefánsdóttir er fædd 1994 í Reykjavík. Hún er með bakgrunn í stjórnmálafræði og útskrifaðist með meistaragráðu í ritlist árið 2023. Hún hefur unnið við blaðamennsku og önnur ritstörf, þar á meðal fyrir útvarp og bókaútgáfur.

Umsögn dómnefndar:

Örverpi er kafli í fjölskyldusögu sem er lesendum bæði kunnugur og nýr og lýsir andstreymi sem öll fást við á einn hátt eða annan. Verkið leiðir lesanda áreynslulaust gegnum atburðarás sem ber bæði með sér léttleikann og þyngslin sem fylgja því að tilheyra fjölskyldu og raunar tengjast öðrum manneskjum tilfinningaböndum. Verkið skoðar þræðina sem liggja milli fólks, hvernig þeir flækjast, styrkjast og trosna á víxl. Hér er því lýst þegar ein undirstaða fjölskyldu gefur sig og hvaða afleiðingar sá brestur hefur á heildina alla. Verkið er athugun á daglegu lífi og hvaða áhrif frávik hefur á hversdagslegar athafnir, bjagar raunveruleikann og getur verið hluti fyrir miklu stærri heild.

Verkið heillar með látleysi sínu. Sagan er sögð í einföldum og hæverskum ljóðlínum meðan undir niðri krauma sterkar tilfinningar. Örverpi er ekki síður athugun á mætti tungumálsins, hversu mörg eða fá orð duga til að endurspegla reynsluheim og vekja skilning viðtakanda. Engu er hér ofaukið, lesanda er veitt fullt traust til að álykta, finna og týna rétt eins og persónur sögunnar. Verkinu var valinn stíll sem er um leið mynd af sjálfu viðfangsefninu, hverfist um gloppur og eyður og hvernig við fyllum í þær með eigin tilveru og hugmyndum.

Með stakri stílfimi dregur höfundur upp tregablandna mynd af veröld sem var og þeim veruleika sem hefur tekið við, fjölskylduböndum sem liðast upp, kynslóðabili sem gliðnar. En myndin sýnir ekki síður fegurðina í því þegar okkur tekst að hrista kliðinn af okkur og vera heil í líðandi stund.

Í dómnefnd sátu: Guðrún Sóley Gestsdóttir (formaður), Sigurbjörg Þrastardóttir og Svavar Steinarr Guðmundsson.

Rithöfundasamband Íslands óskar Birnu innilega til hamingju með verðlaunin.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email