Birgitta Elín Hassel og Bryndís Björgvinsdóttir.
Tvær unglingasögur fá barnabókaverðlaun reykvískra fræðsluyfirvalda 2015;
Hafnfirðingabrandarinn eftir Bryndísi Björgvinsdóttur var valin besta frumsamda bókin.
Eleanor og Park var valin best þýdda barnabókin en Birgitta Elín Hassel og Marta Hlín Magnadóttir sneru þeirri sögu eftir bandaríska rithöfundinn Rainbow Rowell.
Bryndís Björgvinsdóttir tók í gær við barnabókaverðlaunum skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur, en þau voru afhent í Höfða. Verðlaunin fær hún fyrir bókina Hafnfirðingabrandarann sem Vaka Helgafell gaf út. Marta Hlín Magnadóttir og Birgitta Elín Hassel fengu verðlaunin fyrir þýðingu sína á Eleanor og Park sem gefin var út af Bókabeitunni.
Barnabókaverðlaunin voru nú afhent í 43. sinn. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Skúli Helgason formaður skóla- og frístundaráðs fluttu stutt ávörp við athöfnina í Höfða, grunnskólanemendur úr Austurbæjarskóla sungu og sigurvegarar úr Stóru upplestrarkeppninni lásu upp úr verðlaunabókunum.
Í umsögn valnefndar um verðlaunabókina Hafnfirðingabrandarann segir m.a.:
Hafnfirðingabrandarinn er marglaga skáldsaga þar sem fjallað er um sígild stef í lífi unglinga eins og fyrstu ástina og ástarsorgina, félagslíf og samskiptamynstur sem aldrei er eins flókið og á unglingsárum, ofsakvíða, ofsakæti og allt þar á milli. Sagan er umfram allt skrifuð af leiftrandi stílgáfu, umvefjandi hlýju og heilnæmum húmor sem fær lesendur á öllum aldri til að njóta lestrarins og hreinlega tæta bókina í sig.
Í umsögn um þýðingu unglingabókarinnar Eleanor og Park segir m.a. :
Eleanor og Park hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga erlendis og dýrmætt þegar slíkar bækur rata inn í íslenskt málsamfélag og verða hluti af því. Það er vandaverk að skrifa bók í nútímanum fyrir nútímaunglinga á trúverðugu orðfæri unglinga fyrir tuttugu árum á þann hátt að textinn virki hvorki framandi né klisjukenndur. Þegar bætist svo í ofanálag að þýða sama texta yfir á annað tungumál verður málið enn snúnara. Þeim Mörtu Hlín Magnadóttur og Birgittu Elínu Hassell tekst einstaklega vel að ná þessu takmarki án þess að það sé á kostnað læsileika og flæðis textans.
Barnabókaverðlaun skóla- og frístundaráðs þjóna þeim tilgangi að vekja athygli á gildi góðra bókmennta í uppeldisstarfi og á metnaðarfullri útgáfu barnabóka. Valnefnd var að þessu sinni skipuð Brynhildi Björnsdóttur formanni, Jónu Björgu Sætran og Gunnari Birni Melsted.
(mynd með frétt af vef Reykjavíkurborgar)