Guðbergur Bergsson látinn
Guðbergur Bergsson rithöfundur er látinn. Hann lést á heimili sínu 4. september s.l. eftir skammvinn veikindi. Guðbergur var fæddur 16. október 1932. Hann lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1955, hélt síðan til náms á Spáni og lauk prófi í spænskum fræðum, bókmenntum og listasögu frá La Universidad de Barcelona 1958. Guðbergur sendi frá sér fjölda […]
Listamannalaun 2024
Umsóknarfrestur: 2. október 2023, kl. 15:00 Í umsóknum er óskað eftir: Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu/lokaskýrslu hefur verið skilað sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009. Skýrslur eru á „mínum síðum“ umsækjenda. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Rannís Listamenn eru hvattir til að skila […]
Erlendur Jónsson látinn
Erlendur Jónsson, kennari, rithöfundur og bókmenntagagnrýnandi, lést á Landakoti 17. júlí síðastliðinn, 94 ára að aldri. Erlendur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1950. Hann lauk BA-prófi í íslensku og mannkynssögu, auk uppeldis- og kennslufræði frá Háskóla Íslands 1953. Þá stundaði Erlendur nám í enskum og amerískum samtímabókmenntum við Háskólann í Bristol á Englandi […]
Bergþóra Snæbjörnsdóttir hlýtur Maístjörnuna
Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn veita verðlaun fyrir ljóðabók sem kom út á árinu 2022. Verðlaunin, sem bera heitið Maístjarnan, voru afhent í sjöunda sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í dag 24. maí. Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2022 hlýtur Bergþóra Snæbjörnsdóttir fyrir bókina Allt sem rennur Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir: […]
Tveir nýir heiðursfélagar Rithöfundasambandsins
Á aðalfundi þann 11. maí sl. voru kjörnir tveir nýir heiðursfélagar RSÍ, Steinunn Sigurðardóttir og Þórarinn Eldjárn. Karl Ágúst Úlfsson fráfarandi formaður fylgdi tillögunni um heiðursfélaga úr hlaði með þessum orðum: Það er að því komið að ég sinni mínu síðasta verki sem formaður RSÍ og satt best að segja einu ánægjulegasta sem ég hef […]
Ísak Harðarson látinn
Ísak Harðarson skáld lést á Landspítalanum föstudaginn 12. maí eftir stutt veikindi. Ísak fæddist í Reykjavík þann 11. ágúst árið 1956. Hann lauk stúdentsprófi 1977 og stundaði síðan nám við Kennaraháskóla Íslands auk íslenskunáms við Háskóla Íslands. Ísak sendi frá sér sína fyrstu bók, ljóðabókina Þriggja orða nafn árið 1982 og síðan hefur hann gefið […]
Aðalfundur RSÍ 2023
Aðalfundur Rithöfundasambands Íslands var haldinn í Gunnarshúsi þann 11. maí 2023. Á fundinum var Margrét Tryggvadóttir kjörin formaður RSÍ og Ragnar Jónasson kjörinn varaformaður. Sindri Freysson var endurkjörinn meðstjórnandi og Sverrir Norland er nýr meðstjórnandi. Kamilla Einarsdóttir var kjörin varamaður. Auk þeirra sitja áfram í stjórn Jón Gnarr meðstjórnandi og Sigríður Hagalín Björnsdóttir varamaður. Karl Ágúst […]
Nýr starfsmaður hjá Rithöfundasambandi Íslands
Þórunn Hafstað hefur verið ráðin verkefnastjóri hjá Rithöfundasambandi Íslands. Hún tekur við af Tinnu Ásgeirsdóttur sem sinnt hefur starfinu síðastliðin sjö ár. Þórunn er menntuð í sjónrænni mannfræði og kvikmyndagerð og starfaði nú síðast sem verkefnastjóri stafrænnar miðlunar hjá Háskóla Íslands. Hún er einnig stundakennari í Hagnýtri menningarmiðlun við sama skóla. Þórunn starfaði lengi sjálfstætt […]