Search
Close this search box.

Arnar Már Arngrímsson hlýtur Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2016

arnar-mar

Arnar Már Arngrímsson tók við barna- og unglingabókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs 2016 fyrir bókina Sölvasaga unglings á verðlaunaafhendingu Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn 1. nóvember.

Rithöfundasamband Íslands óskar Arnari Má innilega til hamingju með verðlaunin!

Rökstuðningur dómnefndar

Verðlaunabókin fjallar um nútímaungling og viðfangsefnin sem hann þarf að glíma við. En þó vandamálin séu kunnugleg er unglingurinn það ekki. Höfundi tekst í þessari fyrstu bók sinni að búa til persónu sem er áhugaverð, fyndin, óþolandi, leitandi og heillandi. Tungutak sögunnar er lífleg blanda af unglingamáli og ritmáli eldri kynslóðarinnar og þar rekast á menningarheimar. Lesendur fylgja unglingnum gegnum tilvistarkreppur hans sem sýna hve stormasöm unglingsárin eru og erfitt að stýra gegnum þau án skipbrots.

Því nær höfundurinn, Arnar Már Arngrímsson, að miðla af einlægni og trúnaði sínum við ungt fólk í Sölvasögu unglings.

Arnar Már Arngrímsson (f. 1972) er íslenskukennari við Menntaskólann á Akureyri.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email