Dr. Sigurður Ingólfsson lést um liðna helgi á sextugasta aldursári. Sigurður fæddist á Akureyri 31. júlí árið 1966, ólst þar upp og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri. Hann nam við Paul Valéry-háskólann í Montpellier og lauk þaðan doktorsgráðu í frönskum bókmenntum árið 2000.
Sigurður kenndi um árabil við Menntaskólann á Egilsstöðum. Hann vann einnig ýmis störf tengd fjölmiðlun og ferðamennsku.
Sigurður gaf út sína fyrstu ljóðabók 20 ára gamall og urðu þær alls ellefu talsins. Eftir hann liggja einnig þýðingar og leikrit.
Sigurður var félagi í Rithöfundasambandi Íslands frá árinu 2013. Við sendum ástvinum Sigurðar innilegar samúðarkveðjur.


