Andlát: Pétur Bjarnason

Pétur Bjarnason rithöfundur, fyrrverandi fræðslustjóri og varaþingmaður lést þann 30. janúar síðastliðinn. Pétur fæddist á Bíldudal 12. júní 1941 og var því 84 ára gamall.

Að loknu kennaraprófi starfaði Pétur við kennslu og síðar skólastjórnun. Hann gegndi starfi fræðslustjóra Vestfjarða um langa hríð og lét til sín taka bæði í félags- og stjórnmálum. Pétur ritaði nokkrar bækur, meðal annars Suðureyri: Athafnasaga, Sigur lífsins: SÍBS í 75 ár og nú síðast sögu Reykjalundar. Einnig skrifaði hann fjölda greina í blöð og tímarit.

Pétur var félagi í Rithöfundasambandi Íslands frá árinu 2015. Við vottum fjölskyldu og vinum Péturs innilega samúð við fráfall hans.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email