Aðalfundur Rithöfundasambands Íslands, haldinn í Gunnarshúsi 28. apríl 2025 ályktar:
Hagnýting á höfundaréttarvörðum hugverkum til þróunar á gervigreind, án heimildar rétthafa, felur í sér brot á höfundarétti. Rithöfundasambandið skorar á íslensk stjórnvöld að flýta lagasetningu varðandi notkun gervigreindar við gerð hugverka svo að tryggt megi verða að hagnýting á verkum rithöfunda í gervigreindarkerfum eigi sér eingöngu stað með skýru samþykki og gegn sanngjarnri greiðslu.
Rithöfundasambandið skorar jafnframt á opinberar stofnanir sem og einkafyrirtæki að nýta ekki gervigreind við lausn verkefna sem áður hafa verið á verksviði listamanna og höfunda, og taka þannig ekki þátt í atlögu gegn mannlegri sköpun og möguleikum listamanna til að afla sér lífsviðurværis með sköpun sinni.
Rithöfundasamband Íslands fordæmir þá ákvörðun Meta að nýta hugverk, þar á meðal eftir íslenska höfunda, án heimildar, til þróunar á gervigreindarforriti. Slík ráðstöfun á hugverkum er á forræði eigenda höfundaréttar og athafnir sem þessar fela því í sér tilvistarlega aðför að listsköpun og ritstörfum.
Þá fordæmir Rithöfundasambandið jafnframt hugmyndir, svo sem þær sem reifaðar hafa verið í Bretlandi, um að veita tæknifyrirtækjum óheftan aðgang að hugverkum í sambærilegum tilgangi án skýrs samþykkis listamannanna í hverju tilviki.