Aðalsteinn Ásberg gerður að heiðursfélaga

Á aðalfundi í gærkvöldi lagði stjórn RSÍ það til að Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson yrði gerður að heiðursfélaga og var það samþykkt með dynjandi lófataki fundargesta.

Aðalsteinn Ásberg hefur lengst allra sinnt formennsku í Rithöfundasambandinu. Hann hefur unnið sem blaðamaður, útvarpsþulur og textasmiður á auglýsingastofu. Hann var einn af frumkvöðlum tónlistarfélagsins Vísnavina og var í hljómsveitinni Hálft í hvoru. Frá 1980 hefur Aðalsteinn helgað sig ritlist og tónlist jöfnum höndum. Hann var framkvæmdastjóri Félags tónskálda og textahöfunda 1988-1998, forseti Nordisk Populærautor Union 1993-1995, formaður Rithöfundasambands Íslands 1998-2006 og í stjórn STEFs 2006-2012.

Hann stofnaði útgáfufyrirtækið DIMMU ásamt eiginkonu sinni Önnu Pálínu Árnadóttur árið 1992 og hefur rekið það allar götur síðan. Anna Pálína lést langt fyrir aldur fram árið 2004.

Fyrsta ljóðabók Aðalsteins kom út árið 1977. Síðan hefur hann m.a. sent frá sér 20 ljóðabækur, frumsamdar og þýddar, og á annan tug barnabóka af ýmsum toga.

Aðalsteinn gekk í sambandið 1980 og var strax orðinn varamaður í stjórn 1981 – 1983, aftur varamaður 1996 – 1998 og svo formaður 1998 – 2006.

Hann stofnaði Skáld í skólum og átti veg og vanda að vexti þess verkefnis. Á formannsárum hans var sambandið að koma sér fyrir í Gunnarshúsi, opna gestaíbúð hér í kjallaranum, eignast vinnuhúsin, og svo má lengi telja. Það er því í rauninni fátt í starfsemi RSÍ sem ekki ber með sér fingraför Alla á einhvern hátt.

Aðalsteinn Ásberg hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín og þau verið þýdd og gefin út á meira en tug erlendra tungumála. Hann er einn allra besti ljóðaþýðandi landsins og hefur kynnt fyrir okkur ljóðskáld frá ýmsum löndum og málsvæðum sem ekki hafa áður verið þýdd á íslensku. Aðalsteinn hlaut m.a. viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins 2023.

Við hjá RSÍ þökkum Aðalsteini innilega allt hans starf í þágu höfunda og bjóðum hann velkominn í hóp heiðursfélaga!

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email