Lestur þjóðarinnar tekur kipp!![]()
Niðurstöður úr nýrri lestrarkönnun meðal Íslendinga 18 ára og eldri sýna að bóklestur hefur tekið við sér eftir samdrátt í fyrra. Þjóðin ver að jafnaði 64 mínútum á dag í að lesa og/eða hlusta á bækur, samanborið við 59 mínútur í fyrra, og færri segjast ekki lesa neinar bækur.
Þetta er í tíunda sinn sem slík könnun er gerð meðal þjóðarinnar af Miðstöð íslenskra bókmennta, í samstarfi við Borgarbókasafnið, Félag íslenskra bókaútgefenda, Hagþenki, Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Rithöfundasamband Íslands. Rannsóknarfyrirtækið Prósent sá um framkvæmd könnunarinnar og fór hún fram dagana 7. til 28. október 2026.
Notkun bókasafna hefur ekki mælst meiri síðan 2019 og fleiri fá bækur lánaðar. Konur lesa áfram mun meira en karlar og rúmur helmingur fólks á aldrinum 18 til 24 ára segist lesa minna en fyrir fimm árum.
Að jafnaði lesa Íslendingar rétt yfir 2 bækur á mánuði, sem er svipað og undanfarin ár. Hlutfall þeirra sem ekki hafa lesið neina bók síðustu 30 daga lækkar úr 37% í 33% og lestur hefðbundinna bóka eykst á ný, en 32% lesa hefðbundnar bækur vikulega eða oftar samanborið við 28% í fyrra.
Á vef Miðstöðvar íslenskra bókmennta má lesa ítarlegri upplýsingar um könnunina og lestrarvenjur þjóðarinnar árið 2026.


