Andlát: Svanur Jóhannesson

Látinn er Svanur Jóhannesson bókbindari, 97 ára að aldri.

Svanur fæddist að Hróðnýjarstöðum í Laxárdal í Dalasýslu þann 23. september 1929. Foreldrar hans voru Jóhannes úr Kötlum og Hróðný Einarsdóttir húsmóðir. Systur Svans eru Þóra, f. 1948, og Inga Dóra, f. 1940. Kona Svans var Ragnheiður Ragnarsdóttir, f. 1933, d. 2026. Synir þeirra eru Einar, f. 1958, Máni Ragnar, f. 1961, og Páll, f. 1964. Barnabörnin eru átta og langafabörnin átta.

Svanur lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum í Reykholti 1947 og hóf nám í bókbandi hjá Bókfelli sama ár. Sveinsprófi lauk Svanur árið 1951. Hann starfaði hjá Bókfelli til ársins 1983 er hann gerðist starfsmaður á skrifstofu Félags bókagerðarmanna.

Svanur sat í stjórn Bókbindarafélags Íslands, BFÍ, frá 1961, var ritari þess frá 1961-65, varaformaður 1965-68 og formaður frá 1971-76. Hann sat í stjórn Lífeyrissjóðs bókbindara 1966-68 og frá 1971-76. Þá átti hann sæti í ritnefnd Iðnnemans 1950-51 og í ritnefnd Bókbindarans 1956-65. Auk þess safnaði hann í og sá um útgáfu Bókbindaratals. Hann sat í stjórn Félags bókagerðarmanna, FBM, var varaformaður félagsins um skeið og síðan ritari þess. Hann var starfsmaður félagsins frá 1983 fram til eftirlaunaaldurs. Hann var síðar gerður að heiðursfélaga FBM.

Svanur ritaði fjölda greina í tímarit og sat í ritnefndum. Stærstu ritverk hans voru þó Prentsmiðjueintök: Prentsmiðjusaga Íslands, sem kom út 2015 í endurbættri útgáfu, og Prentsmiðjubókin, sem kom út árið 2020.

Svanur var félagi í Rithöfundasambandi Íslands frá árinu 2018. Við þökkum Svani samfylgdina og vottum ástvinum hans samúð við fráfallið.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email