Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn bjóða öllum ljóðsins vinum á afhendingu Maístjörnunnar vegna ársins 2025 en Maístjarnan verður veitt í tíunda sinn við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni miðvikudaginn 3. júní, kl. 15.
Dagskrá:
Örn Hrafnkelsson landsbókavörður býður gesti velkomna og kynnir dagskrá.
Verðlaunahafinn kynntur og fluttur rökstuðningur dómnefndar fyrir valinu.
Landsbókavörður afhendir verðlaunin.
Verðlaunahafinn flytur ávarp.
Flutt verða ljóð úr verðlaunabókinni.
Sýning á verðlaunabókinni og fyrri verkum höfundar opnuð.
Léttar veitingar.



