Sérstök bókmenntamerking til heiðurs Sigrúnu Eldjárn var afhjúpuð í Lækjargötu við Tjörnina föstudaginn 8. maí síðastliðinn. Skemmtileg merking á brunnloki vísar í bókina Allt í plati sem var fyrsta bók Sigrúnar.
Sigrún Eldjárn er einn dáðasti barnabókahöfundur þjóðarinnar og hefur glatt ólíkar kynslóðir lesenda með sínum frábæru verkum í rúmlega 45 ár. Höfundareinkenni hennar þekkja velflestir íslenskir lesendur og það er einkar verðskuldað að Reykjavíkurborg skuli heiðra Sigrúnu með þessum skemmtilega hætti.
Rithöfundasambandið sendir Sigrúnu kærar hamingjuóskir og hvetur ykkur öll til þess að fara í gönguferð að Tjörninni og skoða krókófílsranann sem gægist þar upp!



