Árstíðarverur og Skólastjórinn tilnefnd

Fimmtudaginn 26. mars voru tilnefningar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs kynntar í Norræna húsinu og tilnefndum höfundum frá Íslandi fagnað.

Í ár eru eftirfarandi bækur tilnefndar fyrir Íslands hönd:

Árstíðarverur eftir Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen, myndhöfund

Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson og Elínu Elísabetu Einarsdóttur, myndhöfund

Rithöfundasambandið óskar þeim öllum til hamingju með verðskuldaðan heiður!

Alls eru þrettán verk tilnefnd til verðlaunanna og um þau öll má lesa hér.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email