Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis 2026

Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis voru kynntar í Borgarbókasafninu í Grófinni þann 4. febrúar. Hagþenkir hefur frá 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Viðurkenningin verður veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni 4. mars.

Þessi eru tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2025:

Andri Þorvarðarson fyrir Fjölbraut í 50 ár: Saga Fjölbrautaskólans í Breiðholti 1975–2025. Útgefandi er Fjölbrautaskólinn í Breiðholti.

„Áhugaverð og lipurlega skrifuð saga fyrsta fjölbrautaskólans á Íslandi, sem jafnframt endurspeglar margvíslegar breytingar sem orðið hafa í samfélaginu síðastliðna hálfa öld.“

Daníel Bergmann fyrir Fuglar og fuglastaðir: Árbók Ferðafélags Íslands 2025.

„Frumleg nálgun þar sem fuglaskoðun á einstökum landsvæðum er kynnt og fjallað um fuglaljósmyndun, framlag áhugamanna og fleira. Einstakar ljósmyndir og vönduð kort.“

Davíð Ólafsson og † Arndís S. Árnadóttir fyrir Mynd og hand: Skólasaga 1939–1999. Útgefandi er Sögufélag.

„Hin merka saga Myndlista- og handíðaskóla Íslands er rakin frá stofnun skólans þar til hann varð hluti af Listaháskóla Íslands. Grundvallarrit í sögu skóla og myndmennta.“

Einar Falur Ingólfsson fyrir Kristján H. Magnússon: Listamaðurinn sem gleymdist. Útgefandi er Veröld.

„Vandað og glæsilegt verk um myndlistarmann sem hefur fengið takmarkaða athygli. Bókin er byggð á víðtækri rannsókn um verk Kristjáns og æviferil.“

Garðar Gíslason og Blær Guðmundsdóttir fyrir Ég og umheimurinn. Útgefandi er Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

„Þriðja hefti vandaðs kennsluefnis í samfélagsgreinum fyrir miðstig grunnskóla ásamt góðum kennsluleiðbeiningum á vef. Lipur texti í ríkulega myndskreyttri bók.“

Kjartan Atli Ísleifsson fyrir Skrifarar sem skreyttu handrit sín: Alþýðulist og skreytingar í handritum síðari alda. Útgefandi er Háskólaútgáfan.

„Frumrannsókn sem varpar nýju ljósi á skreytingar í handritum alþýðuskrifara. Mikilvæg viðbót við rannsóknir á sviði íslenskrar handritamenningar.“

Kristín Svava Tómasdóttir fyrir Fröken Dúlla: Ævisaga. Útgefandi er Benedikt.

„Vönduð og afar læsileg ævisaga Jóhönnu Knudsen, hugsjóna- og hjúkrunarkonu, sem starfaði meðal annars fyrir umdeilt ungmennaeftirlit á tíma ástandsins svokallaða.“

Sigfús Jónsson og Sveinn Agnarsson fyrir Sjávarútvegur Íslendinga 1975–2025: Fyrra bindi: Starfsumhverfi og stjórnsýsla. Útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag.

„Greinargott og upplýsandi yfirlit laga og reglna um undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Fjallað er meðal annars um kvótakerfið, vinnumarkað, hafrétt og smábátaútgerð.“

Sigurjón Árni Eyjólfsson fyrir Abstraktmálverkið: Helgimynd íslenskrar menningar á 20. öld? Útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag.

„Frumleg listfræðileg nálgun um tengsl abstraktlistar við framfaratrú og veraldarhyggju  með hliðsjón af hugmyndafræðilegum átökum í víðara samhengi samfélags og trúar.“

Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir fyrir Meyjar og völd: Rímur og saga af Mábil sterku. Útgefandi er Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

„Athyglisverð umfjöllun um einstakar rímur sem hafa aldrei áður komið út á prenti. Saga þeirra er rakin í víðu samhengi, greint frá handritum og bent á mögulegan höfund.“

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email