Nú hafa Nýræktarstyrkir Miðstöðvar íslenskra bókmennta verið veittir í átjánda sinn. Styrkirnir eru veittir nýjum og efnilegum höfundum sem hvor um sig hljóta hálfa milljón króna.
Þann 5. júní veitti Miðstöð íslenskra bókmennta tveimur nýjum höfundum Nýræktarstyrki fyrir verk þeirra, en hvor styrkur nemur hálfri milljón króna. Þetta er í átjánda sinn sem styrkirnir eru veittir efnilegum höfundum sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum.
Í ár bárust 55 umsóknir um styrkina en að vali standa bókmenntaráðgjafar Miðstöðvar íslenskra bókmennta, með samþykki stjórnar. Í ár voru ráðgjafar þau Helga Birgisdóttir og Jóhannes Ólafsson.
Styrkhafar voru þau Karólína Rós Ólafsdóttir, höfundur verksins Lífskán, og Natan Jónsson, höfundur verksins Sjáðu þú brennur.
Umsögn bókmenntaráðgjafa um verk Karólínu: Lífskán eftir Karólínu Rós Ólafsdóttur er heillandi ljóðsaga um líkamann, veikindi og manninn andspænis heilbrigðiskerfinu. Textinn er lágstemmdur en agaður og myndmálið sem notað er til að lýsa líkamlegri skynjun, hugarórum og mannlegum samskiptum er sterkt. Lífskán er ljóðrænt ferðalag um mátt tungumálsins til að takast á við mótlæti, halda reisn og skilja undur hins mannlega.
Um höfundinn: Karólína Rós Ólafsdóttir (f. 1997) er skáld frá Akureyri. Hún lauk BA prófi í ritlist og bókmenntafræði frá Goldsmiths University of London 2021 og MA prófi í ritlist frá Háskóla Íslands í janúar 2025. Hún hefur birt ljóð í Pastel ritröð, Tímariti Máls og menningar og Skírni sem og í útgáfum í bæði Bretlandi og Þýskalandi. Hún hefur verið virk í upplestrarsenunni í Reykjavík sem og í Glasgow þar sem hún hefur unnið með SPAM zine&press, bæði með tilraunakennd bókverk og upplestra. Hún hlaut viðurkenningu fyrir ljóð sitt ‘Í FYRSTA SINN SEM ÞÚ BÝRÐ Á ÍSLANDI’ í Ljóðstaf Jóns úr Vör 2023 og er einn stofnandi og meðlimur ljóðakollektívsins MÚKK sem er starfandi í Reykjavík.
Umsögn bókmenntaráðgjafa um verk Natans: Í Sjáðu þú brennur tekst Natani Jónssyni að bregða upp grípandi myndum af íslenskum raunveruleika í tólf smásögum. Í meitluðum, kröftugum prósanum sem höfundur hefur gott vald á gætir íróníu og glettni með óvæntum hliðstæðum eða mótsögnum tilverunnar. Styrk sagnanna er að finna í lifandi samtölum en jafnframt í dulúð hins ósagða.
Um höfundinn: Natan Jónsson (f. 1985) er fæddur á Höfn í Hornafirði en hefur verið búsettur í Hafnarfirði, Frakklandi og Þýskalandi. Hann útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands árið 2012 og hefur komið að ýmsum verkefnum tengdum kvikmyndagerð, þá helst leikstjórn og handritsskrifum. Einnig hefur hann skrifað tvö leikrit; verkið Samfarir Hamfarir sem var sett upp í Tjarnarbíó árið 2016 og Igíl Redug sem var sett upp af Stúdentaleikhúsinu árið 2019. Sama ár setti hann upp uppistandsýningu á Reykjavík Fringe hátíðinni.
Á myndinni sjást þau Natan, Hrefna Haraldsdóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta og Karólína Rós.