Gervigreind og bókmenntaþýðingar
Tímaritið Counterpoint, tímarit félaga bókmenntaþýðenda í Evrópu, fjallar um gervigreind í nýjasta tölublaði sínu. Gervigreindin hefur verið mikið í umræðunni undanfarið, ekki síst í tengslum við bókmenntaþýðingar, en margir eru uggandi um margvísleg og ófyrirsjáanleg áhrif þessarar nýju tækni á greinina. Hér má lesa nýjasta tölublaðið í heild sínni.
Auður Haralds látin
Auður Haralds rithöfundur lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 2. janúar 2024 eftir stutt veikindi. Auður fæddist í Reykjavík þann 11. desember 1947. Hún starfaði sem blaðamaður, þýðandi, útvarpskona og pistlahöfundur og sinnti verslunar-, skrifstofu- og verksmiðjustörfum. Fyrsta skáldsaga Auðar, Hvunndagshetjan: þrjár öruggar aðferðir til að eignast óskilgetin börn, kom út árið 1979. Hún vakti mikla […]