Heiðursfélagi og fyrrverandi formaður Rithöfundasambands Íslands er fallinn frá
Sigurður Pálsson skáld er látinn eftir erfið veikindi, 69 ára að aldri. Sigurður var heiðursfélagi Rithöfundasambands Íslands og formaður þess 1984 – 1988. Sigurður fæddist á Skinnastað í Axarfirði 30. júlí 1948. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og nam leikhúsfræði og bókmenntir í Sorbonne og lauk þaðan maîtrise-gráðu og D.E.A. (fyrri hluti doktorsgráðu). […]