Látnir félagar
Dr. Þorvarður Helgason, rithöfundur og leikhúsgagnrýnandi fæddist í Reykjavík 18. maí 1930. Hann lést 7. desember s.l. Þorvarður var stofnfélagi í Rithöfundasambandi Íslands. Þorvarður nam leikhúsfræði, frönsku og leikstjórn erlendis og tók lokapróf í leikstjórn 1958, Hann stofnaði ásamt öðrum leikfélagið Grímu og leikstýrði þar. Þorvarður útskrifaðist sem doktor í leikhúsfræðum frá Universität Wien 1970. […]
Sigurður Pálsson hlýtur fálkaorðuna
Forseti Íslands veitti fálkaorðuna við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á nýársdag 2017. Meðal þeirra tólf Íslendinga sem sæmdir voru heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu var Sigurður Pálsson ljóðskáld. Rithöfundasamband Íslands óskar Sigurði innilega til hamingju. Hér má sjá lista yfir hina nýja fálkaorðuhafa.