Laugardaginn 9. maí veitti Íslandsdeild IBBY sínar árlegu viðurkenningar fyrir framlög til barnamenningar, Vorvinda, við athöfn í Borgarbókasafninu Grófinni. Vorvindum er ætlað að vekja athygli á verkum og starfsemi sem hleypir ferskum og endurnærandi vindum inn í íslenska barnamenningu og því sem vel er gert innan barnamenningar.

Að þessu sinni voru Vorvindahafarnir þrír.

Sesselía Ólafsdóttir fékk viðurkenningu fyrir bókina Silfurberg.

Þórey Mjallhvít Heiðardóttir Ómarsdóttir fékk viðurkenningu fyrir Ormhildarsögu.

Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir fyrir Bókmenntahátíð barnanna.

Sesselía Ólafsdóttir, rithöfundur og leikari, fékk viðurkenningu fyrir framlag hennar til barna- og unglingabókmennta. Bók hennar, Silfurberg, hefur vakið athygli fyrir metnaðarfullan söguheim, sterka byggingu og skýra frásagnarrödd og var einnig var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Þórey Mjallhvít Heiðardóttir Ómarsdóttir, teiknari, teiknimyndagerðarmaður og leikstjóri, hlaut viðurkenningu fyrir að hafa miðlað metnaðarfullum myndasögum, og þá sérstaklega Ormhildarsögu, til barna í gegnum teiknimyndabækur sínar og teiknimyndaþættina um Ormhildi sem sýndir eru á RÚV. Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir hljóta viðurkenningu fyrir Bókmenntahátíð barnanna.  Verkefnið samanstóð af fjórum skólum á Norðurlandi þar sem nemendur í 5. – 8. bekk sömdu sögur, útbjuggu bækur, myndlýstu og seldu loks á bókmenntahátíð þar sem ágóðinn af bókasölunni var nýttur til að styrkja gott málefni.

Rithöfundasamband Íslands sendir þeim öllum hjartans hamingjuóskir!

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email