Search
Close this search box.

Upplestrar og kynningar – Taxtar

Hér fyrir neðan er að finna taxta sem RSÍ setur. Taxtar RSÍ eru lágmarkstaxtar. Það þýðir að höfundum er í sjálfsvald sett að setja upp hærri taxta fyrir vinnu sína. Sérstakir taxtar eru fyrir skóla enda miðast þeir við að höfundur undirbúi efni fyrir heila kennslustund.

Gott er fyrir bæði höfunda og verkkaupa að hafa ýmis atriði til hliðsjónar þegar samið er um greiðslu fyrir verk. Hér má finna leiðbeiningar fyrir höfunda og þýðendur og hér má finna leiðbeiningar fyrir verkkaupa sem fá höfunda eða þýðendur til að lesa upp úr verkum sínum, spjalla um bókmenntir og lestur eða taka að sér önnur bókmenntatengd verkefni.

Rafrænar heimsóknir: Sömu taxtar gilda þegar heimsóknir fara fram rafrænt. Ekki er heimilt að taka upp rafrænar heimsóknir nema með leyfi höfundar. Sé streymi sent út á fleiri en einum stað í einu bætist 50% álag ofan á lágmarksgreiðsluna per útsendingarstað.

Ferðir: Fari höfundur út fyrir sitt heimasvæði greiðist 25% álag. Þurfi höfundur að dveljast yfir nótt greiðist 50% álag. Auk greiðslna fyrir upplestur/kynningu greiðir verkkaupi ferðir- og uppihald þegar það á við.

Upplestur eða kynning

Upplestur/kynning: 42.000 kr
Upplestur lágmarksgreiðsla/innlit*: 30.000 kr 

*3 eða fleiri höfundar og viðvera er undir 1 klukkustund

Upplestur eða kynning í skóla

Einfaldur tími í kennslustofu**:  36.000 kr
Einfaldur tími á sal:  54.000 kr

** Fari fjöldi nemenda á einni kynningu yfir 30 gildir taxtinn á „sal“

Fundir og pallborð

Þátttaka í pallborðsumræðum:  42.000 kr
Stjórnun pallborðsumræðna:  60.000 kr
Ráðstefnu-/fundarstjórn:  72.000 kr
Fyrirlestur (eftir umfangi):  70-150.000 kr

Námskeið í skóla

Fyrstu 80 mínútur:  72.000 kr
Næstu 80 mínútur:  48.000 kr
Síðan hverjar 80 mínútur:  24.000 kr

Taxtar uppfærðir 3. október 2023.