SÍUNG

SÍUNG er félagsskapur íslenskra barna- og unglingabókahöfunda innan Rithöfundasambands Íslands.

Óstjórn SÍUNG 2025-26 skipa:

Elísabet Thoroddsen, formaður
Bjarni Fritzson, varaformaður
Yrsa Þöll Gylfadóttir, ritari
Linda Ólafsdóttir, meðstjórnandi
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, meðstjórnandi
Elías Rúni, meðstjórnandi
Blær Guðmundsdóttir, meðstjórnandi
Gunnar Helgason, meðstjórnandi

Áherslur stjórnar á komandi starfsári eru að auka sýnileika barna- og ungmennabóka og styrkja tengsl samtakanna við aðila á borð við FÍBÚT, Bókmenntaborgina, IBBY og RSÍ. SÍUNG hyggst einnig beita sér sérstaklega fyrir bættum kjörum barna- og ungmennabókahöfunda og þrýsta á stjórnvöld að leiðrétta nýlega lækkun framlaga til Bókasafnssjóðs. Einnig stefna þau á að útbúa handbók um starfsemi félagsins til að styrkja og bæta starf SÍUNG í framtíðinni.