Search
Close this search box.

Tilnefningar til Viðurkenningar Hagþenkis 2024

 Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að tilnefna tíu höfunda og bækur er til greina kæmu.

Viðurkenning Hagþenkis verður veitt við hátíðlega athöfn í mars í Þjóðarbókhlöðunni og hlýtur verðlaunahafinn viðurkenningarskjal og 1.250.000 krónur.

Eftirfarandi eru tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis í ár:

Bára Baldursdóttir
Kynlegt stríð – Ástandið í nýju ljósi. Útgefandi er Bjartur
Merkileg greining á skjalasöfnum frá síðari heimsstyrjöld sem nýverið voru gerð aðgengileg. Höfundur afhjúpar skipulagðar njósnir hins opinbera um konur sem höfðu samneyti við hermenn.

Gunnar Skarphéðinsson
Dróttkvæði ? Sýnisbók. Útgefandi er Skrudda.
Mikilvægt og einkar læsilegt safnrit um dróttkvæði með greinargóðum útskýringum sem auðvelda lesendum nútímans að skilja bakgrunn og sögulegt samhengi þessarar bókmenntagreinar.

Haraldur Sigurðsson
Samfélag eftir máli – Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi. Útgefandi er Sögufélag.
Stórvirki um sögu skipulags og hönnunar byggðar á Íslandi, og á erindi við bæði lærða og leika. Höfundur byggir á gríðarmiklu magni heimilda sem hann greinir og setur í stærra samhengi.

Helgi Máni Sigurðsson
Fornbátar á Íslandi – Sjómennirnir og saga þeirra. Útgefandi er Skrudda.
Fróðleg kynning á bátasmíði og sjósókn í öllum landshlutum frá miðri 19. öld fram til 1950. Bókin byggist á heimildum um báta, eigendur þeirra og smiði. Hún er prýdd fjölda ljósmynda og teikninga.

Kristín Loftsdóttir
Andlit til sýnis. Útgefandi er?Sögufélag.
Vandað verk um tilurð og sögu safna á tímum nýlenduvæðingar og kynþáttahyggju. Höfundur rekur slóð forvitnilegra safngripa og miðlar rannsókn sinni á myndrænan og persónulegan hátt.

Lilja Árnadóttir og Mörður Árnason (ritstjórar)
Með verkum handanna ? Íslenskur refilsaumur fyrri alda. Útgefandi er Þjóðminjasafn Íslands.
Óvenju glæsilegt verk sem kynnir stórkostleg textílverk sem unnin voru á Íslandi fyrr á öldum og skipa sess í alþjóðlegu samhengi. Byggist á viðamiklum rannsóknum Elsu E. Guðjónsson.

Ólafur Gestur Arnalds
Mold ert þú – Jarðvegur og íslensk náttúra. Útgefandi er Iðnú.
Stórvirki á sviði náttúru- og umhverfisfræði með áherslu á sérstöðu íslensks jarðvegs. Fjallað er ýtarlega um mikilvægi moldarinnar í vistkerfum þurrlendis með ríkulegum gögnum og myndefni.

Ólafur Engilbertsson (ritstjóri)
Steyptir draumar – Líf og list Samúels Jónssonar. Útgefandi er Sögumiðlun.
Mikilvæg útgáfa um líf og list merkilegs utangarðslistamanns og endurreisn einstakrar arfleifðar. Líflegt myndefni og vandaður texti.

Sveinn Einarsson
Leikmenntir ? Um að nálgast það sem mann langar að segja í leikhúsi. Útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag.
Leikhússaga síðustu aldar er rauður þráður bókarinnar sem fjallar um form, stíl, orðfæri og fleira tengt leiksviðinu. Verkið er mikilvæg viðbót við sögu íslenskrar leiklistar, og lýsir vel þeim galdri sem gerist þegar sýningar eru settar upp.

Þórgunnur Snædal
Rúnir á Íslandi. Útgefandi er Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Ýtarlegt og aðgengilegt yfirlitsrit um íslenska rúnasögu, sem varpar ljósi á hefð sem hélst frá landnámi til okkar daga. Afrakstur áratugalangra rannsókna höfundarins.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email