Tilnefningar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar árið 2026 voru tilkynntar í Mengi þann 16. apríl. Alls eru fimm bækur tilnefndar í þremur flokkum og verða verðlaunin afhent þann 22. apríl.
Eftirtalin verk voru tilnefnd að þessu sinni:
Frumsamin skáldverk
Blaka, eftir Rán Flygenring, útgefandi: Angústúra
Efri hæðin eftir Jón Lorange, útgefandi: Landasonur
Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, útgefandi: Forlagið / Mál og menning
Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson, útgefandi: Forlagið / Mál og menning
Torf, grjót og burnirót eftir Sigrúnu Eldjárn, útgefandi: Forlagið/Mál og menning
Myndlýsingar
Árstíðarverur, myndlýst af Lynn Janssen, útgefandi: Salka
Ég bý í risalandi, myndlýst af Birnu Daníelsdóttur, útgefandi: Forlagið
Hjartslátturinn hennar Lóu, myndlýst af Lilju Cardew, útgefandi: Bókabeitan
Njála hin skamma, myndlýst af Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur, útgefandi: Bókabeitan
Við, myndlýst af Fanny Sissoko, útgefandi: Karíba
Þýðingar
Sól rís á sláttudegi, íslensk þýðing eftir Magneu J. Matthíasdóttur, útgefandi: Forlagið
Undrarútan, íslensk þýðing eftir Jón St. Kristjánsson, útgefandi: Forlagið
Ferðataskan, íslensk þýðing eftir Ástu Halldóru Ólafsdóttur, útgefandi: Kvistur
Versta vika sögunnar, íslensk þýðing eftir Kristján B. Jónasson, útgefandi: Drápa
Týr, íslensk þýðing eftir Sigríði Ástu Árnadóttur, útgefandi: Forlagið/Mál og menning
Í dómnefnd sátu Sigrún Margrét Guðmundsdóttir formaður, skipuð af Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Salka Guðmundsdóttir, skipuð af Rithöfundasambandi Íslands og Halldór Baldursson, skipaður af Félagi íslenskra teiknara.
Umsagnir um tilnefndar bækur
MYNDLÝSINGAR
Árstíðarverur
Myndhöfundur: Linn Janssen
Höfundur texta: Diljá Hvannberg Gagu
Útgefandi: Salka
Teikningar Linn feta hinn þrönga veg á milli hins aðgengilega og listræna. Verkin eru í senn hugljúf og myndrænt leitandi sem þjónar vel frásögn sögunnar sem gerist á mörkum hins hversdagslega og huglægs ævintýraheims. Myndirnar einkennast af sterkum höfundareinkennum og standa með því sjálfstætt sem listaverk en styðja um leið fullkomlega við textann. Litapallettan er í grunninn dempuð og köld en forgrunnur, vel skreyttur með smáatriðum, sker sig listalega vel frá með heitum og skærlituðum tónum. Persónusköpun er meira ljúf en ágeng sem rímar við lágstemmdan frásagnarmáta sögunnar.
Ég bý í risalandi
Höfundur: Birna Daníelsdóttir
Útgefandi: Forlagið
Í bókinni „Ég bý í risalandi“ fá myndir Birnu að leika lausum hala með expressívri túlkun þar sem myndbygging og óvænt sjónarhorn eiga ríkan þátt í skapa andrúmsloft og frásögn sögunnar. Í þessari sterku umgjörð er hugljúf aðalpersóna sem fangar lesandann inn í heim þar sem stórt verður lítið og lítið verður stórt. Heildstætt verk þar sem fagurfræði og frásagnartækni mætast á háu plani.
Njála hin skamma
Höfundur: Kristín Ragna Gunnarsdóttir
Útgefandi: Bókabeitan
Stílhreinar teikningar Kristínar bera með sér fagurfræðilega fágun þar sem einfaldleiki forma og yfirveguð notkun lita halda góðu frásagnarlegu jafnvægi við kankvís textabrotin úr Njálu. Fletir og heildræn sýn gefa opnunum gott jafnvægi en það er hinn lúmski húmor og glettni sem gerir myndlýsingar sérstakar, dýpkar upplifunina og gefur hönnuðu útliti myndanna mannlegt yfirbragð.
Við
Myndhöfundur: Fanny Sissoko
Höfundur: Helen Hafgnýr Cova
Útgefandi: Karíba
Teikningar Fannyar bera með sér listræna næmni. Myndirnar eru lipurlega teiknaðar og með fallegum litasamsetningum og blæbrigðum, skapa þær flæði sem bindur verkið áreynslulaust saman. Listamaðurinn sýnir öryggi í sinni tækni þar sem mýkt og góð tilfinning fyrir áferð gefa einfaldri sögu með skýran boðskap líf.
Hjartslátturinn hennar Lóu
Myndhöfundur: Lilja Cardew
Höfundur: Kristín Cardew
Útgefandi: Bókabeitan
Myndir bókarinnar bera vott um einstaka listræna sýn og næmni. Lilja sækir innblástur frá evrópskri teiknihefð 20. aldar. Einföld myndhönnun og smekklega notaðar klippimyndir njóta fágaðrar línutækni teiknarans sem binda myndirnar saman af öryggi. Áferð og litir eru notuð sparlega til áherslu þar sem við á. Bókin er hreinræktað dæmi um það hvernig minimalismi með vönduðu lifandi handverki getur skapað hrífandi upplifun fyrir lesandann.
ÞÝÐINGAR
Sól rís á sláttudegi
Þýðandi: Magnea J. Matthíasdóttir
Höfundur: Suzanne Collins
Útgefandi: Forlagið
Í fimmtu bókinni um Hungurleikana er farið aftur í tímann og kastljósinu beint að persónunni Haymitch sem lesendur þekkja úr fyrri bókum. Magnea J. Matthíasdóttir er með okkar reyndari þýðendum og lagði raunar grunninn að Hungurleikaheiminum á íslensku. Fantasíuþýðingar eru vandmeðfarnar en Magneu tekst afar vel að koma til skila bæði framvindu, spennu og persónueinkennum. Sögusviðið málar hún upp á snjallan og líflegan hátt sem heldur lesandanum kirfilega inni í þessum dystópíska, háskalega heimi.
Undrarútan
Þýðandi: Jón St. Kristjánsson
Höfundur: Jakob Martin Strid
Útgefandi: Forlagið
Undrarútan er stórvirki danska höfundarins Jakobs Martins Strid sem hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2024 – stór í sniðum, stór saga og stórvel teiknuð og skrifuð. Jón St. Kristjánsson þýðir söguna á lipran og gáskafullan hátt sem fangar vel litríkan heim sögunnar. Hann hugar einkar vel að samspili mynda og texta; þannig gerir hann íslenskum lesendum kleift að upplifa hina dásamlegu frásögn af Takú og risastóru undrarútunni.
Ferðataskan
Þýðandi: Ásta Halldóra Ólafsdóttir
Höfundur: Chris Naylor-Ballesteros
Útgefandi: Kvistur
Ásta Halldóra Ólafsdóttir þýðir fallega, forvitnilega og skemmtilega teiknaða bók eftir breska höfundinn Chris Naylor-Ballesteros þar sem við kynnumst litlu dýri sem birtist óvænt með stóra ferðatösku. Ásta Halldóra kemur sögunni vel til skila. Hún heldur textanum tærum og skýrum án þess þó að fletja hann út. Þannig nær hún því jafnvægi sem er einkar mikilvægt í stuttum bókum fyrir yngri börn. Það er sannarlega fengur að slíkum þýðingum.
Versta vika sögunnar – miðvikudagur
Þýðandi: Kristján B. Jónasson
Höfundur: Eva Amores & Adam Cosgrove
Útgefandi: Drápa
Versta vika sögunnar er gamansamur bókaflokkur um hinn seinheppna Jón Jónsson og hér er komin þriðja bókin í röðinni. Kristján B. Jónasson þýðir söguna einstaklega skemmtilega. Hann notar fjölskrúðugt og vandað mál en gefur engan afslátt af ærslafengnum og ungæðislegum stílnum. Þýðingin er fyndin og lipur aflestrar og Kristján færir sögusviðið í vel heppnaðan búning fyrir íslenska lesendur.
Týr
Þýðandi: Sigríður Ásta Árnadóttir
Höfundur: Julia Donaldson & Axel Scheffler
Útgefandi: Forlagið
Julia Donaldson og Axel Scheffler eru heimsþekkt fyrir smellnar og hrífandi barnabækur. Sagan af drekanum Tý er í bundnu máli og því þarf þýðandi að fanga bæði frásögn, stíl og stemningu verksins um leið og þýðingin er ort á íslensku. Þetta verkefni leysir Sigríður Ásta með glans. Rímið í sögunni og endurtekningarnar fleyta frásögninni áfram og þýðingin skemmtir ungum sem öldnum lesendum.
FRUMSAMDAR
Blaka eftir Rán Flygerning
Útgefandi: Angústúra
Rán Flygerning er einn þekktasti barnabókahöfundur samtímans og hefur fengið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín m.a. Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, Íslensku bókmenntaverðlaunin, og Barnabókmenntaverðlaun Reykjavíkurborgar. Í Blöku heldur hún á nýjar slóðir í sagnagerð sinni en í þessu kostulega verki nýtir hún sér efni úr hrollvekjuhefðinni til þess kynna fyrir ungum lesendum flókinn myrkraheim leðurblökunnar sem við þekkjum helst úr sögum ógnar og ótta en umbreytist í meðförum Ránar í dulmagnaða og opinberandi spennu.
Efri hæðin eftir Jón Lorange
Útgefandi: Landasonur
Bók Jóns Lorange er jafnmikið fyrir fullorðna lesendur og börn. Þar er allt á skjön, óviðbúið og skakkt sem gerir það að verkum að sá sem les er jafnfús að byrja aftur og barnið. Í bókinni Efri hæðin lenda ung stúlka og kötturinn hennar í ýmsum furðum þegar þau halda upp dulmagnaðan stigann í húsinu sem leiðir þau eftir alls konar ranghöldum í átt til mömmu upp á næstu hæð þar sem þau ætla að fá mjólk handa kisu.
Silfurgengið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur
Útgefandi Forlagið / Mál og menning
Brynhildur er eitt af stóru nöfnunum í heimi íslenskra barnabókmennta en hún hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín, m.a. Norrænu barnabókmenntaverðlaunin og Íslensku barnabókmenntaverðlaunin en höfundurinn er m.a. þekktur fyrir endursagnir sínar á Íslendingasögunum Njálu, Eglu og Laxdælu. Í Silfurgenginu segir Brynhildur sögu Sirrýlei sem fær gamla silfurnælu að gjöf frá ömmu sinni á 15 ára afmælinu. Nælan tekur smám saman völdin í lífi Sirrýlei sem fær áhuga fyrir formæðrum sínum, þeim sem áttu næluna á undan henni en í gripnum hvílir saga eigendanna allt frá tímum vesturfaranna og ástandsárum heimsstyrjaldarinnar síðari fram á okkar daga. Þetta er grípandi bók þar sem lifaður samtími íslenskra unglinga er settur í séríslenskt kvennasögulegt samhengi.
Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson
Myndlýsingar: Elín Elísabet Einarsdóttir
Útgefandi: Forlagið / Mál og menning
Ævar Þór er einn af hornsteinunum í íslensku barnabókalífi og hefur sent frá sér fjölmargar bækur á síðustu árum sem ungir lesendur hafa tekið fangnandi. Hann hefur
fengið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir starf sitt sem Ævar vísindamaður og verið valinn af Aarhus39, 39 bestu barnabókahöfundum Evrópu undir fertugu, auk þess sem hann var tilnefndur til Astrid Lindgren-verðlaunanna sem sérstakur lestrarhvetjari. Í Skólastjóranum segir Ævar Þór söguna af pjakknum Salvari sem er 12 ára en hann sækir í gríni um stöðu skólastjóra og stendur frammi fyrir alls konar kostulegum vanda þegar hann öllum að óvörum hreppir starfið.
Torf, grjót og burnirót eftir Sigrúnu Eldjárn
Útgefandi: Forlagið/Mál og menning
Sigrúnu Eldjárn þarf vart að kynna fremur en flesta þá höfunda sem standa hér í dag. Hún hefur í tæp fimmtíu ár sent frá sér fjölda íslenskra barnabóka sem sumar hverjar eru löngu orðnar klassískar hjá lesendum. Sigrún hefur þrisvar hlotið Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar, hún hefur verið tilnefnd til Norrænu barnabókmenntaverðlaunanna og verðlauna H.C. Andersen, auk þess sem hún hlaut Íslensku barnabókmennaverðlaunin í flokki barnabóka fyrir bók sína Silfurlykillinn. Í Torf, grjót og burnirót opnar Sigrún augu ungra lesenda fyrir gamalli íslenskri húsagerðarlist þegar afi Unu og Orms útskýrir fyrir þeim hvernig Íslendingar reistu torfbæi um aldir.



