Search
Close this search box.

Rithöfundasamband Íslands fær bráðabirgðaaðild að BHM

Framkvæmdastjórn BHM veitti Rithöfundasambands Íslands (RSÍ) bráðabirgðaaðild að bandalaginu 30. janúar.

Mat framkvæmdastjórnarinnar er að aðildarumsókn Rithöfundasambandsins uppfylli þau skilyrði fyrir aðild sem áskilin eru í lögum BHM. Til að fullgilda aðild þarf samþykki aðalfundar BHM sem haldin verður 25. maí næstkomandi. Þar fær RSÍ áheyrnarfulltrúa.

Með bráðabirgðaaðild getur félagsfólk Rithöfundasambandsins innan skamms byrjað að greiða til BHM og tengdra sjóða. Ávinnslutími réttinda í SjúkrasjóðiStarfsmenntunarsjóði og Starfsþróunarsetri er sex mánuðir fyrir nýtt félagsfólk en réttindi myndast strax við fyrstu greiðslu í Orlofssjóði BHM.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email