Search
Close this search box.

Nýræktarstyrkir 2022

Nýræktarstyrkir
Fimmtudaginn 2. júní veitti Miðstöð íslenskra bókmennta þremur nýjum höfundum Nýræktarstyrki fyrir verk þeirra, en hver styrkur nemur hálfri milljón króna. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarráðherra afhenti styrkina í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambandsins.

Árlega veitir Miðstöð íslenskra bókmennta Nýræktarstyrki fyrir skáldverk höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum, óháð aldri, til að hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut. Átt er við skáldverk í víðri merkingu; sögur, ljóð, leikrit og fleira. Nýræktarstyrkir hafa verið veittir frá árinu 2008; tveir til fimm styrkir í hvert sinn og valið er úr innsendum handritum.  Verkin sem hljóta viðurkenninguna í ár eru afar fjölbreytt, ein ljóðabók, ein skáldsaga og eitt smásagnasafn og yrkisefnin eru af ýmsum toga; baráttan við geðsjúkdóma, ægivald náttúrunnar á heimskautaslóðum og mörk hins hversdaglega og hins furðulega í lífi okkar. 

Nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta 2022 hljóta eftirtalin verk og höfundar:

Talandi steinar
Ljóðabók
Höfundur: Guðmundur Magnússon

Þú sem ert á jörðu
Skáldsaga
Höfundur: Nína Ólafsdóttir

Svefngríman
Smásagnasafn
Höfundur: Örvar Smárason

Þetta er í fimmtánda sinn sem Nýræktarstyrkjum er úthlutað, en alls hafa rúmlega sjötíu höfundar hlotið þessa viðurkenningu frá upphafi fyrir afar fjölbreytt verk. Meðal þeirra sem hlotið hafa Nýræktarstyrki eru höfundarnir Arndís Þórarinsdóttir, Fríða Ísberg, Sverrir Norland, Benný Sif Ísleifsdóttir, Hildur Knútsdóttir, Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Dagur Hjartarson, Júlía Margrét Einarsdóttir, Sigurlín Bjarney Gísladóttir, Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Jakub Stachowiak svo aðeins nokkur séu nefnd.
Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email