Search
Close this search box.

Kristín Ómarsdóttir fær Maístjörnuna

Kristin_Omarsd

Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn veita verðlaun fyrir ljóðabók sem kom út á árinu 2017. Verðlaunin, sem bera heitið Maístjarnan, voru afhent í annað sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í dag 29. maí.
 
Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2017 hlýtur Kristín Ómarsdóttir fyrir ljóðabók sína
Kóngulær í sýningargluggum
 
Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina segir:
 
Danse macabre er miðaldalíking yfir dauðadansinn sem sameinar okkur öll, háa sem lága, unga sem gamla, konur sem karla, og hann stígum við mannfólkið allt okkar líf. Í þróttmikilli ljóðabók Kristínar Ómarsdóttur er stiginn dans af sama tagi, líf og dauði tvinnast saman í köngulóarvef og hvergi er hægt að staldra við fremur en á sjálfri lífsleiðinni, heimurinn er fullur af undrum og óhugnaði, fegurð og ljótleika, völdum og valdaleysi og ótalmörgu öðru. Myndmálið er afar sterkt, stundum allt að því yfirþyrmandi, og ljóðavefur Kristínar heldur okkur föngnum, því hann er samtími okkar sjálfra. Kóngulær í sýningargluggum er afar óvenjuleg, einstaklega sterk og ögrandi ljóðabók og allar líkingar og lýsingar opna nýjar víddir og nýja sýn á heiminn.“
Kristín Ómarsdóttir er fædd 24. september 1962 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborg í Hafnarfirði 1981 og stundaði síðan nám í íslensku, almennri bókmenntafræði og spænsku við Háskóla Íslands. Kristín hefur dvalist í Kaupmannahöfn og Barcelona en býr nú og starfar í Reykjavík. Kristín hefur jöfnum höndum fengist við ljóða- og skáldsagnagerð, smásögur og leikritun. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín. Skáldsagan Elskan mín ég dey var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 1999 og fékk Menningarverðlaun DV sama ár. Leikrit hennar, Ástarsaga 3, var tilnefnt til Norrænu leikskáldaverðlaunanna. Árið 2005 fékk hún Grímuverðlaunin, sem leikskáld ársins, fyrir leikritið Segðu mér allt. Fyrir ljóðabókina Sjáðu fegurð þína hlaut hún Fjöruverðlaunin í flokki fagurbókmennta árið 2008. Skáldsagan Flækingurinn var tilnefnd til Menningarverðlauna DV 2015. Kóngulær í sýningargluggum var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2017 en Kristín var líka tilnefnd 2012 fyrir Millu, 1997 fyrir Elskan mín ég dey og 1995 fyrir Dyrnar þröngu. Kristín hefur einnig unnið að myndlist, sýnt teikningar sínar og tekið þátt í sýningum þar sem hún hefur unnið með ólík form: myndbönd og skúlptúra. Bækur eftir Kristínu hafa verið þýddar á sænsku, frönsku og finnsku og ljóð hennar hafa birst í erlendum safnritum. ?
Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2017 sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Í dómnefnd sátu Magnea J. Matthíasdóttir tilnefnd af Rithöfundasambandinu og Rannver H. Hannesson tilnefndur af Landsbókasafni Íslands – Háskólasafni.
 
Tilnefndar voru bækurnar:
Án tillits eftir Eydísi Blöndal í útgáfu höfundar;
Dauðinn í veiðarfæraskúrnum eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur sem Viti menn gaf út;
Flórída eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur sem  Benedikt bókaútgáfa gaf út;
Kóngulær í sýningargluggum eftir Kristínu Ómarsdóttir sem JPV útgáfa gaf út.
Stór olíuskip eftir Jónas Reyni Gunnarsson í útgáfu Partus
 
Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email