Search
Close this search box.

Íslensku bókmenntaverðlaunin

verðlaunin

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaun voru veitt í þremur flokkum.

Áslaug Jónsdóttir, Rakel Helmsdal og Kalle Güettler hlutu verðlaun í flokki barna- og ungmennabóka fyrir bókina Skrímsli í vanda.

Í umsögn dómnefndar um bókina segir að hún sé litríkt og fallegt verk sem taki á viðfangsefni sem snertir okkur inn að kviku. „Skrímsli í vanda er marglaga saga fyrir alla aldurshópa, sem sómir sér vel í hinum glæsilega skrímslabókaflokki.“

Kristín Eiríksdóttir hlaut verðlaun í flokki fagurbókmennta fyrir skáldsöguna Elín, ýmislegt.
Í umsögn dómnefndar um bók Kristínar segir að hún sé vandlega úthugsuð og margslungin skáldsaga, „sem te?flir fínlega saman ólíkri veruleikaskynjun persónanna í áhrifaríkri frásögn af hverfulu eðli minninga.“

Unnur Jökulsdóttir hlaut verðlaun fyrir bókina Undur Mývatns: um fugla, flugur, fiska og fólk í flokki fræðirita og bóka almenns efnis.

Í umsögn dómnefndar um bók Unnar segir að hún sé einstætt listaverk sem  „miðlar fræðilegri þekkingu með ástríðu fyrir lífskraftinum og persónulegri sýn á það sem fyrir augu ber, jafnt óvægna grimmd sem blíðustu fegurð.“

Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda.

Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi fimmtán bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefnd skipuðu Helga Ferdinandsdóttir, Hulda Proppé, Sigurjón Kjartansson og Gísli Sigurðsson, sem var jafnframt var formaður nefndarinnar. Hér má sjá hvaða bækur voru tilnefndar til verðlaunanna í ár.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email