Search
Close this search box.

Höfundakvöld í Gunnarshúsi 28. október – Steinunn Sigurðardóttir

Fimmtudaginn 28. október kl. 20:00 verður fjallað um nýjustu skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur Systu megin – leiksaga. Höfundakvöldið hefst kl 20:00 í Gunnarshúsi.  Björn Halldórsson rithöfundur ræðir verkið við höfundinn.
 
Systu megin er hárbeitt og óvenjuleg saga um utangarðsfólk sem fær hér bæði rödd og ásýnd.
 
Systa býr ein í kjallarakompu við bágar aðstæður en hún ræður sér sjálf. Hún hefur losað sig að mestu undan ægivaldi Mömmu eins og Brósi, bróðir hennar og bandamaður í tilverunni. Saman hafa þau tekist á við harðan heim frá barnæsku en valið hvort sína leið, Brósi innan samfélagsins, Systa utan þess. Dagsdaglega dregur Systa fram lífið með dósasöfnun en þegar henni býðst aukið öryggi í skiptum fyrir frelsi er úr vöndu að ráða.
 
Skáldverk Steinunnar Sigurðardóttur búa yfir einstökum tóni og andblæ. Sögur hennar eru í senn harmrænar og fyndnar, raunsæjar og furðulegar, og leikandi stíllinn er ærslafullur. Steinunn hefur skapað og skrifað um margar ógleymanlegar kvenpersónur í verkum sínum – svo aðeins Alda í Tímaþjófnum sé nefnd – og nú bætist Systa í hópinn.

Léttar veitingar. Allir velkomnir!

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email