Search
Close this search box.

Heiðursfélagi og fyrrverandi formaður Rithöfundasambands Íslands er fallinn frá

formenn 006.jpg

Ingibjörg Haraldsdóttir skáld og þýðandi er látin eftir erfið veikindi, 74 ára að aldri.

Stjórn og framkvæmdastjóri Rithöfundasambandsins þakka Ingibjörgu samfylgdina og dýrmætt samstarf. Rithöfundasamband Íslands sendir fjölskyldu hennar hugheilar samúðarkveðjur.

Ingibjörg Haraldsdóttir fæddist í Reykjavík 21. október 1942 og ólst þar upp. Hún lauk prófi í kvikmyndastjórn frá Kvikmyndaskóla ríkisins í Moskvu 1969, starfaði sem aðstoðarleikstjóri í Havana á Kúbu 1970-1975. Árin sem hún dvaldi í Sovétríkjunum og á Kúbu þýddi hún og skrifaði greinar, aðallega fyrir Þjóðviljann en þar starfaði hún um árabil sem blaðamaður og kvikmyndagagnrýnandi eftir að hún fluttist aftur heim 1975. Ingibjörg sat í ritnefnd Tímarits Máls og menningar frá 1977 og var aðstoðarritstjóri tímaritsins 1993-2000. Ingibjörg sat í stjórn Rithöfundasambands Íslands frá 1992 – 1998 og var formaður sambandsins frá 1994 – 1998.

Frá 1981 var Ingibjörg ljóðskáld og þýðandi að aðalstarfi, en fyrsta ljóðabók hennar, Þangað vil ég fljúga, kom út árið 1974. Ingibjörg gaf út sjö ljóðabækur, þar af tvær safnbækur, og hafa ljóð hennar verið þýdd á ungversku, þýsku, lettnesku, litháísku, búlgörsku, rússnesku, slóvakísku, ensku og Norðurlandamál. Hún hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir ritstörf sín, meðal annars Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar, Íslensku bókmenntaverðlaunin, Menningarverðlaun DV fyrir þýðingu sína á Fávitanum eftir Dostojevskí og Íslensku þýðingarverðlaunin 2004 fyrir Fjárhættuspilarann eftir sama höfund. Þá var hún tvisvar tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, 1993 og 2004.

Ingibjörg var afkastamikill þýðandi, aðallega úr spænsku og rússnesku. Hún þýddi meðal annars skáldsögur eftir Dostojevskí og Búlgakov, fjölda leikrita eftir ýmsa höfunda og þýðingar hennar á ljóðum og smásögum spænsku- og rússneskumælandi höfunda birtust í tímaritum og voru fluttar í útvarpi.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email