Sagnfræðingurinn og rithöfundurinn Guðjón Friðriksson var á dögunum útnefndur heiðursborgari Reykjavíkur. Með því vill Reykjavíkurborg þakka fyrir ómetanlegt framlag hans til sögunnar, menningarinnar og borgarinnar.
Fáir eru betur að nafnbótinni komnir en Guðjón sem hefur á afar fjölbreyttan hátt rannsakað og miðlað sögu Reykjavíkur, meðal annarra starfa á merkum ferli.
Á myndinni sést Guðjón við Höfða ásamt Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra. Hann er níundi heiðursborgari Reykjavíkur.
Rithöfundasambandið sendir Guðjóni kærar hamingjuóskir með nafnbótina!



