Gestaíbúðir á Norðurlöndum
Eckerö Post & Tullhus, gestaíbúð – Eckerö, Álandseyjum
Á Álandseyjum er gestaíbúð sem stendur norrænum listamönnum til boða.
Umsóknir sendist til:
Ålands kulturdelegation,
PB 1060, Ax-22100 MARIEHAMN, Åland, Finland
Vefur: Heimasíða – upplýsingar og umsóknareyðublöð | Kort
Listamannaíbúðir – Rogalandi, Noregi
Yfirvöld í Rogalandi í Noregi bjóða rithöfundum, og öðrum listamönnum sem vilja heimsækja Rogaland, ókeypis dvöl í þremur bústöðum: Obrestad fyr, Utsira fyr og Lalandhuset. Ætlunin er að gefa innlendum og erlendum listamönnum tækifæri til að upplifa menningu og umhverfi á svæðinu. Nánari upplýsingar á heimasíðu Rogaland Fylkeskommune.
Vefur: Heimasíða – upplýsingar og umsóknareyðublöð | Obrestad fyr – kort | Utsira fyr – kort | Lalandshuset, Klepp – kort
Gestaherbergi í Författarnas Hus – Stokkhólmi, Svíþjóð
Íslenskir rithöfundar sem eiga leið um Stokkhólm geta fengið ódýra gistingu í Författarnas Hus, Drottninggatan 88 B, Stockholm. Nánari upplýsingar gefur vaktmästare:
Peter Cottino på +46 76 247 63 64 eller e-mail: bookaroom@writershouse.se
Vefur: Heimasíða – Författarnas Internationella Gästhemästhem | Writers’ Guest Rooms | Kort
Villa Kivi – Helsinki, Finnlandi
Í Helsinki geta íslenskir rithöfundar fengið ódýra næturgistingu í rithöfundahúsinu Villa Kivi.
Upplýsingar hjá finnska rithöfundasambandinu: info@kirjailijaliitto.fi
Vefur: Wikipedia | Heimasíða á finnsku | Kort
Íbúðir fræðimanna – Kaupmannahöfn, Danmörku
Íbúðir fræðimanna í Jónshúsi í Kaupmannahöfn eru starfræktar samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar sem forsætisnefnd Alþingis setur.
Vefur: Heimasíða – upplýsingar og umsóknareyðublöð | Kort
Gammel Have – Fjóni, Danmörku
Húsið „Gammel Have“ í Ringe á Fjóni stendur norrænum rithöfundum og öðrum listamönnum til boða.
Vefur: Heimasíða – upplýsingar og umsóknareyðublöð | Kort
Julius Bomholts hus – Fanö, Danmörku
Hús Júlíusar Bomholts, „Dikterhjemmet“ í Sönderho á Fanö í Danmörku stendur til boða sem bústaður fyrir norrænan rithöfund með fjölskyldu.
Vefur: Heimasíða – upplýsingar og umsóknareyðublöð | Kort
Höfunda- og þýðendamiðstöðin – Visby, Gotlandi
Í Visby á Gotlandi er Baltneska höfunda- og þýðendamiðstöðin. Þar býðst rithöfundum og þýðendum frá öllum Norðurlöndunum og þeim löndum sem liggja að Eystrasalti kostur á að dveljast við ritstörf einn mánuð í senn án þess að greiða húsaleigu.
Vefur: Heimasíða – upplýsingar og umsóknareyðublöð | Kort
Air Litteratur Västra Götaland – Svíþjóð
Höfundar og þýðendur geta sótt um dvöl í höfundaíbúðum í Strömstad, Åmål, Alingsås og Partille gegnum Air Litteratur Västra Götaland.
Vefur: Heimasíða – upplýsingar og umsóknareyðublöð |