Search
Close this search box.

Frá stjórn RSÍ.

Kæru félagar.

Við í stjórn RSÍ höfum setið undir mjög alvarlegum ásökunum undanfarna daga frá félögum okkar, ásökunum um sjálftökur og óheiðarleg vinnubrögð vegna tillagna um nefndarmenn í úthlutunarnefnd launasjóðs rithöfunda sem RSÍ ber lögum samkvæmt að skila árlega til menntamálaráðherra.

Fyrirkomulag þetta er borið undir aðalfund félagsins á hverju ári og hefur enginn séð á því vankanta hingað til. Stjórnin hreyfist hratt og við erfum vinnureglur frá þeim sem fyrir voru. Meirihluti stjórnar tók sæti í fyrra og formaður í hitteðfyrra. Þrír stólar eru lausir í stjórn í vor, þar með talin sæti formanns og varaformanns.

Umrædd úthlutunarnefnd tekur líka árlega breytingum og endurnýjar sig alfarið á þriggja ára fresti. Þannig er gegnsæi mikið í þessu ferli og allir sem að málum hafa komið hafa vandað sig hið ýtrasta, leitað til fræðasamfélagsins og í þekkingarbrunninn á skrifstofu RSÍ. Að auki hefur þess sérstaklega verið gætt að úthlutunarnefnd tengist hvorki útgáfum, einstökum höfundum né stjórn RSÍ á nokkurn hátt. Þetta er vinnutilhögun sem hefur gengið á milli félagsmanna sem koma og fara úr stjórn.

Það er einnig mjög alvarlegt að saka fagfólkið, sem tók að sér vanþakkað starf úthlutunarnefndar hjá Stjórn listamannalauna, um að vera á mála hjá stjórn RSÍ.

Ekkert vinnulag er fullkomið og þaðan af síður endanlegt. Sífelldrar endurskoðunar er þörf og hér þarf að lengja arminn þótt ljóst megi vera að stjórnarmenn og framkvæmdastjóri hafi unnið sína vinnu af nákvæmni, hlutleysi og heilindum.

RSÍ átti frumkvæði að því að Bandalag íslenskra listamanna hefur nú sett á laggirnar starfshóp sem mun yfirfara verklag við skipanir úthlutunarnefnda launasjóðanna og skoða allt sem mætti betur fara í verklaginu. Í starfshópnum eru sérfræðingar af vettvangi lista- og fræðasamfélagsins sem ekki þiggja listamannalaun, m.a. fyrrverandi formaður stjórnar Listamannalauna. Við væntum þess að fá frá þessu góða fólki skýrar tillögur að vinnulagi með fjarlægð á stjórnir félaganna og hið pólitíska vald í huga , en með faglega þekkingu og kunnáttu við mat á listgreinum að leiðarljósi, eins og við höfum ætíð haft.

Þegar þessar tillögur liggja fyrir höldum við félagsfund og ræðum málin.

Með kveðju,

Kristín Helga

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email