Search
Close this search box.

Fjöruverðlaunin

fjoruverdlaun_4

Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna – voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag,  miðvikudaginn 16. janúar. Verðlaun voru, sem fyrr, veitt í þremur flokkum.

Smásagnasafn Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Ástin, Texas, fékk verðlaun í flokki fagurbókmennta. Í rökstuðningi dómnefndar segir að bók Guðrúnar Evu geymi fimm smásögur sem láti ekki mikið yfir sér.

Mynd með færslu
 

„Þær eru lágstemmdar á yfirborðinu en undir niðri krauma miklar tilfinningar. Sögurnar hvefast allar um ástina og fjalla bæði um nánd og skortinn á henni. Þetta er fádæma vel gert; mannlýsingar eru trúverðugar og vekja samkennd með persónum og samskiptum þeirra er lýst af slíkri dýpt og næmi að þau láta lesandann vart ósnortinn. Þrátt fyrir erfitt viðfangsefni er stíllinn léttur, lipur og myndrænn og jafnan er stutt í húmorinn. Það er unun að lesa sagnasveiginn Ástin, Texas.“

Þjáningarfrelsið – óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla eftir Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur fékk verðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis. Í rökstuðningi dómnefndar segir að bókin sé mikilvægt og tímabært framlag til íslenskra bókmennta.

Mynd með færslu
 

„Í okkar fámenna landi sem annarstaðar í veröldinni er tjáningarfrelsi einn af helstu mælikvörðunum á frjálsræði borgaranna – þar sem við sögu koma afskipti stjórnmálaafla og eignarhald á fjölmiðlum með tilheyrandi  hagsmunaárekstrum.“

Fíasól gefst aldrei upp eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur fékk verðlaun í flokki barna- og unglingabókmennta. Í rökstuðningi dómnednar segir að í þessari sjöttu bók um úrræðagóða ærslabelginn Fíusól sé lesandinn vakinn til umhugsunar um ýmis alvarleg málefni sem tengjast réttindum barna.

 

Mynd með færslu

„Umræða um siðferðileg álitamál er sett fram af barnslegri einlægni en um leið alvöru sem dýpkar undirtón sögunnar. Persónur bókarinnar eru ekki byggðar upp af staðalímyndum heldur eru þær lifandi og margræðar rétt eins og heimur Fíusólar. Fíasól gefst aldrei upp er margslungin bók fyrir breiðan aldurshóp þar sem Kristín Helga Gunnarsdóttir dregur upp sannfærandi myndir af átökum og uppgötvunum í lífi Fíusólar, breyskleika hennar og styrk.“

Einnig voru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna 2019 bækurnar Ungfrú Ísland eftir Auði Övu Ólafsdóttur og Kláði eftir Fríðu Ísberg í flokki fagurbókmennta; Krullað og klippt: Aldarsaga háriðna á Íslandi eftir Báru Baldursdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur og Skiptidagar – Nesti handa nýrri kynslóð eftir Guðrúnu Nordal í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis; Lang-elstur í leynifélaginu eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og Sjúklega súr saga eftir Sif Sigmarsdóttur og Halldór Baldursson í flokki barna- og unglingabókmennta.

Dómnefndir Fjöruverðlaunanna 2019 skipa Guðrún Lára Pétursdóttir, Jóna Guðbjörg Torfadóttir og Kristín Ástgeirsdóttir í flokki fagurbókmennta; Dalrún J. Eygerðardóttir, Sóley Björk Guðmundsdóttir og Unnur Jökulsdóttir í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis; og Arnþrúður Einarsdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir og Sigrún Birna Björnsdóttir í flokki barna- og unglingabókmennta.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email