Erlingur Sigurðarson, skáld og fv. kennari, lést 12. nóvember sl., sjötugur að aldri. Erlingur fæddist á Grænavatni í Mývatnssveit 26. júní 1948. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1969, lauk BA-prófi í íslensku og sögu frá HÍ 1976, cand. mag.-prófi frá sama skóla 1987 og prófi í uppeldis- og kennslufræði 1981. Hann stundaði einnig nám við Colby College í Maine í Bandaríkjunum og háskólann í Tübingen í Þýskalandi.
Erlingur var kennari við Menntaskólann á Akureyri 1978-97 og forstöðumaður Sigurhæða – Húss skáldsins á Akureyri 1997-2003. Hann birti fjölda greina og ljóða í blöðum og tímaritum og gaf út tvær ljóðabækur: Heilyndi 1997 og Haustgrímu 2015.
Erlingur naut starfslauna listamanns hjá Akureyrarbæ 2005 og fékk heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs Akureyrar fyrir ritlist árið 2016.
Rithöfundasamband Íslands þakkar Erlingi samfylgdina og sendir fjölskyldu hans samúðarkveðjur.