Search
Close this search box.

Elísabet Jökulsdóttir hlýtur viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins

ekj2

Elísabet Kristín Jökulsdóttir hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins fyrir ritstörf þann 4. janúar. Þetta er í 63. sinn sem veitt er viðurkenning Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins og þetta eru því elstu verðlaun Íslands á sviði bókmennta. Í rökstuðningi úthlutunarnefndar segir meðal annars: „Eitt mikilvægasta framlag hennar til íslenskra bókmennta eru skrif hennar um kvenlíkamann, kynvitundina og skömmina. Hún hefur fært í orð þá hluti sem legið hafa í þagnargildi langt fram á okkar daga, og gerði það áður en samfélagið var tilbúið að hlusta. Það er fyrst með nýrri kynslóð kvenna og í kjölfar samfélagsmiðlahreyfinga síðustu ára sem samfélagið hefur öðlast getu að meta þetta framlag til fulls.“
Elísabet sendi frá sér sína fyrstu ljóðabók, Dans í lokuðu herbergi 1989 og gaf hana sjálf út. Síðan hefur hver bókin rekið aðra, smáprósar, ljóð, smásögur auk þess sem Elísabet hefur skrifað leikrit sem að minnsta kosti sum hver hafa verið gefin út á bók auk þess að vera leikin á sviði. Umfjöllunarefni Elísabetar hafa verið af margvíslegum toga en konan og stúlkan, barnið hafa gjarnan verið í brennidepli í textum sem virðast eins og næstum því skapa sig sjálfir á ákafri leit og sjálfskrufningu þar sem raunveruleiki og fantasía takast á og er þá draumurinn oftar en ekki raunverulegri en efnisheimurinn enda búa í draumunum ást og sorg og endalaust flæði sem samsvarar náttúrunni.

Við afhendingu viðurkenningarinnar afhenti Elísabet Magnúsi Geir Þórðarsyni útvarpsstjóra skál með vatnsdropa í sem endurspegla á eins konar tjörn, sjálfsprottna tjörn. „Já, ég var að hugsa um það að við myndum bara öll setja skál út í glugga með vatni í, þá kæmi friður í heiminum og við myndum smám saman senda út góðar hugsanir og öll stríð myndu hætta,“ sagði Elísabet Jökulsdóttir í viðtali við Jórunni Sigurðardóttur strax í lok verðlaunaafhendingarinnar. Elísabet hefur bryddað upp á ýmsum gjörningum í gegnum tíðina, sem vakið hafa mikla athygli.

Á heimasíðu RÚV má hlusta á viðtal Jórunnar Sigurðardóttur við Elísabetu Jökulsdóttur á afhendingu Menningarviðurkenninga RÚV.

Rithöfundasamband Íslands óskar Elísabetu innilega til hamingju með viðurkenninguna.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email