Search
Close this search box.

Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2023

Reykjavíkurborg auglýsir eftir óútgefnu handriti að ljóðabók vegna Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar sem verða veitt á síðari hluta árs 2023. Handritið skal vera frumsamið og á íslensku.

Milljón króna verðlaun eru veitt fyrir valið handrit. Valnefnd metur verkin. Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða forlags höfundar. Sammælist valnefnd um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka má fella verðlaunin niður þetta árið.

Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila í þríriti merktum dulnefni, en nafn, heimilisfang og símanúmer höfundar fylgi með í lokuðu umslagi.

Handrit berist í síðasta lagi 1. júní 2023.

Utanáskrift:

Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

b.t. Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO

Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email