Search
Close this search box.

Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2019

Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óprentuðu handriti að ljóðabók, frumsömdu á íslensku, til að keppa um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sem verða til úthlutunar á síðari hluta árs 2019.  

Verðlaun að upphæð 800 þúsund krónur verða veitt fyrir eitt handrit. Þriggja manna dómnefnd metur verkin. Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður að starfa með. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka, má fella verðlaunaafhendingu niður það ár. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila merktum dulnefni, en nafn og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi.

Handrit berist í síðasta lagi 3. júní 2019.

Utanáskrift:  Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar b.t. Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík

Haukur Ingvarsson hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2018 Aðrir sem áttu handrit í keppninni eru beðnir að vitja þeirra á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar sem fyrst eða fyrir 15. febrúar 2019. Gefa þarf upp dulnefni. Aðeins var opnað umslag með nafni vinningshafa.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email