Search
Close this search box.

Bókaverðlaun barnanna

bokaverdlaun_barnanna_2016_heimasida

Bókaverðlaun barnanna voru veitt við hátíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta í Borgarbókasafninu í Grófinni. Frá árinu 2002 hafa almennings- og skólabókasöfn landsins verðlaunað tvær nýjar bækur, eina íslenska og aðra þýdda. Börn og unglingar velja uppáhaldsbækurnar sínar og fer valið fram á heimasíðu Borgarbókasafns og í grunnskólum og bókasöfnum um allt land. Bókin Mamma Klikk eftir Gunnar Helgason fékk afgerandi kosningu sem vinsælasta frumsamda barnabókin, með helmingi fleiri atkvæði en sú næsta í röðinni. Verðlaun fyrir vinsælustu þýddu barnabókina hlaut Helgi Jónsson fyrir Dagbók Kidda klaufa: besta ballið. Um 4000 börn um allt land tóku þátt í kosningunni.
Sex börn fengu viðkenningu fyrir þátttökuna og fengu ýmist bækur eða  leikhúsmiða og eitt þeirra fær höfundinn Gunnar Helgason í heimsókn í bekkinn sinn.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email