Search
Close this search box.

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar

Rán Flygenring, Dagur B. Eggertsson, Margrét Tryggvadóttir, Þórarinn Eldjárn og Tinna Ásgeirsdóttir.

Margrét Tryggvadóttir, Rán Flygenring og Þórarinn Eldjárn hljóta Barnabókaveðlaun Reykjavíkurborgar 2020 fyrir bækurnar Kjarval: málarinn sem fór sínar eigin leiðir, Vigdís: bókin um fyrsta konuforsetann og Hver vill hugga krílið? eftir Tove Jansson.

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar voru veitt við nokkuð óvenjulegar aðstæður í ár vegna Covid-19 og heldur síðar en venjan er. Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, afhenti höfundunum verðlaunin í Höfða en í stað hefðbundinnar móttöku var brugðið á það ráð að kvikmynda athöfnina til að fleiri mættu njóta og fagna með höfundunum og má sjá stikluna hér á vef Bókmenntaborgarinnar og einnig á vef Reykjavíkurborgar.

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar eru veitt í þremur flokkum bóka fyrir börn og ungmenni, flokki frumsaminna bóka, flokki myndlýsinga og flokki þýðinga. Þetta eru elstu barnabókverðlaun á Íslandi en þau voru fyrst veitt sem Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur árið 1973. Árið 2016 voru Dimmalimm verðlaunin og Barnabókaverðlaun Reykjavíkur sameinuð og urðu flokkarnir þá þessir þrír. Verðlaunaféð er 350.000 kr. í hverjum flokki.

Í ár fékk dómnefndin 108 bækur til skoðunar, 32 frumsamdar á íslensku, 54 þýddar og 20 myndríkar. Þetta er um 20% aukning milli ára og var hún mest í flokki þýddra bóka. Fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki og nú er ljóst hvaða þrjár bækur hljóta verðlaunin í ár. Dómnefnd verðlaunanna skipuðu þau Tinna Ásgeirsdóttir, sem var formaður, Ásmundur Kristberg Örnólfsson, Helga Birgisdóttir, Karl Jóhann Jónsson og Valgerður Sigurðardóttir.

Margrét Tryggvadóttir hlýtur Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar í flokki frumsaminna bóka fyrir bók sína Kjarval: málarinn sem fór sínar eigin leiðir. Iðunn gaf út.

Rán Flygenring hlýtur Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar í flokki myndlýsinga í barna- og ungmennabók fyrir bók sína Vigdís: bókin um fyrsta konuforsetann. Angústúra gaf út.

Þórarinn Eldjárn hlýtur Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar í flokki þýddra bóka fyrir þýðingu sína á Hver vill hugga krílið? eftir Tove Jansson. Mál og menning gaf út.

Lesa meira.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email