Search
Close this search box.

Auglýst eftir umsóknum um Nýræktarstyrki

Árlega veitir Miðstöð íslenskra bókmennta Nýræktarstyrki fyrir skáldverk höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum, óháð aldri, til að hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut. Átt er við skáldverk í víðri merkingu; sögur, ljóð, leikrit og fleira. Nýræktarstyrkir hafa verið veittir frá árinu 2008. Valið er úr innsendum handritum. Hægt er að sjá fyrri úthlutanir hér.

Alls hafa rúmlega sjötíu höfundar hlotið þessa viðurkenningu frá upphafi fyrir afar fjölbreytt verk og margir þessara höfunda hafa haldið áfram ritferli sínum með góðum árangri. Athygli vakti að fyrir síðustu jól mátti finna fimmtán verk höfunda sem sem hlotið hafa Nýræktarstyrki. 

Umsóknarfrestur er til 17. apríl 2023

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email