Search
Close this search box.

Arndís, Lóa Hlín og Baldvin hljóta Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veitti Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar í Ráðhúsinu við hátíðlega athöfn í dag, síðasta vetrardag. Verðlaun voru veitt í þremur flokkum, frumsamið efni, myndlýstar bækur og þýddar.

Í flokki frumsamins efnis hlýtur Arndís Þórarinsdóttir verðlaun fyrir bókina Kollhnís í útgáfu Máls og menningar.

„Af eftirtektarverðri næmni, mannskilningi og ritfærni fjallar Arndís Þórarinsdóttir í bók sinni Kollhnís um brostnar vonir og væntingar, snúin fjölskyldutengsl, bróðurást og einhverfu. Bókin er í senn fyndin og falleg, hjartanístandi og raunsönn. Hún heldur lesanda frá upphafi og ætti að höfða til breiðs aldurshóps lesenda,“ segir í umsögn dómnefndar.

Í flokki myndlýsinga hlýtur Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir verðlaun fyrir bókina Héragerði, ævintýri um súkkulaði og kátínu í útgáfu Sölku.

„Myndhöfundareinkenni Lóu Hlínar eru mjög greinileg í bókinni Héragerði, en um leið er líka auðséð að bókin er ætluð eldri lesendum en hefðbundnar myndabækur. Ekki bara vegna þess að textinn er lengri og þyngri, ef hægt er að nota það orð um svo sprellfjörugan texta, heldur eru sjónrænir þættir eins og litur á síðum og letri markvisst notaðir til að styrkja upplifunina og auðga lesturinn. Mikilvægt er að lesendur fái að upplifa að bók getur verið bæði fallegur og spennandi hlutur í sjálfu sér, jafnvel boðið upp á óvænta upplifun eins og litla bók í leynivasa! Það er skemmtilegt, og ákaflega mikilvægt, að nú skuli sífellt fjölga myndlýstum bókum fyrir lesendur sem komnir eru yfir hefðbundinn myndabókaaldur og gott að sjá myndræna útfærslu sem höfðar til þeirra notaða af svo mikilli leikni, og svo mikilli gleði,“ segir í umsögn dómnefndar.

Í flokki þýðinga hlýtur Baldvin Ottó Guðjónsson verðlaun fyrir þýðingu sína á bókinni Einu sinni var mörgæs eftir Madga Brol í útgáfu Kvists bókaútgáfu.

„Í Einu sinni var mörgæs nær Magda Brol að fanga þá staðreynd að skáldskapurinn flytur fjöll, og jafnvel mörgæsir líka. Lesendum er boðið í ævintýraför með Magna Mörgæs sem einn daginn rekst á stóran, rauðan, blaktandi-flaktandi hlut sem reynist vera bók. Fjör, fyndni og forvitni ráða för í verkinu og vinnur Baldvin Ottó Guðjónsson þýðinguna skemmtilega af hendi og tekst vel að koma til skila vandræðagangi og fróðleiksfýsn mörgæsanna. Boðskapur textans er slíkur að hann vekur upp hlýju í hjarta bókaunnenda þvert á aldur,“ segir í umsögn dómnefndar.

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar eru elstu barnabókaverðlaun landsins og er helsta markmið þeirra að vekja athygli á því sem vel er gert í bókaútgáfu fyrir unga lesendur og hvetja þá til bóklesturs.

Dómnefndina skipuðu þau Sunna Dís Jensdóttir formaður, Ragnheiður Gestsdóttir og Arngrímur Vídalín.

Rithöfundasamband Íslands óskar höfundunum öllum innilega til hamingju með verðlaunin!

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email