Search
Close this search box.

Andlát

Eggert Þor BernhardssonEggert Þór Bern­h­arðsson, sagn­fræðing­ur og rit­höf­und­ur, varð bráðkvadd­ur á heim­ili sínu á gaml­árs­dag.

Eggert var 56 ára gam­all þegar hann lést. Hann fædd­ist í Reykja­vík 2. júní 1958. Eggert sló í gegn í flóði síðustu jóla með bók­inni Sveit­in í sál­inni. Bú­skap­ur í Reykja­vík og mynd­un borg­ar.

Önnur stór­virki hans eru Und­ir báru­járns­boga. Bragga­líf í Reykja­vík 1940-1970 og tveggja binda verkið Saga Reykja­vík­ur Borg­in 1940-1990.

Eggert Þór var stunda­kenn­ari í sagn­fræði við Há­skóla Íslands frá 1987, fa­stráðinn frá 1993. Haustið 2006 varð hann dós­ent í hag­nýtri menn­ing­armiðlun, deild sem hann setti sjálf­ur á fót með aðstoð Lands­bank­ans. Hann var pró­fess­or í sömu grein frá 2009.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email