Search
Close this search box.

Aðventa lesin í Gunnarshúsi

Saga Gunnars Gunnarssonar um eftirleitir Fjalla-Bensa og förunauta hans á Mývatnsöræfum verður að venju lesin í Gunnarshúsum í Reykjavík og á Skriðuklaustri 11. desember, þriðja sunnudag í aðventu.
Hjá Rithöfundasambandi Íslands í Gunnarshúsi á Dyngjuvegi 8 les Sigríður Láretta Jónsdóttir, leikkona og meistaranemi í ritlist og hjá Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri les Orri Huginn Ágústsson leikari. Lesturinn hefst á báðum stöðum kl. 13.30. Á sama tíma er sagan lesin hjá sendiráði Íslands í Berlín.

Gunnar Gunnarsson skrifaði nóvelluna Aðventu árið 1936 og kom hún út í fyrsta sinn það ár í Þýskalandi. Síðan þá hefur sagan um Benedikt, Eitil og Leó verið lesin víða um heim af milljónum manna, ekki síst í desember. Aðventa er það verk Gunnars sem þýtt hefur verið á flest tungumál og selst í stærstum upplögum.

Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir á þessa kyrrðarstund í amstri aðventunnar. Streymt verður frá lestrinum í Gunnarshúsi á fésbókarsíðu Rithöfundasambandsins. Boðið verður upp á kaffi og smákökur með lestrinum sem tekur rúmar tvær klukkustundir

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email