Aðalfundur RSÍ verður haldinn 28. apríl 2016. Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs er til 24. mars nk. Kjósa þarf formann, varaformann, einn meðstjórnanda og einn varamann, skv. 5. grein laga Rithöfundasambands Íslands.
Jón Kalman Stefánsson varaformaður og Gauti Kristmannsson varamaður gefa ekki kost á sér til endurkjörs.
Skrifleg framboð til stjórnarkjörs berist skrifstofu RSÍ eigi síðar en kl. 14.00 fimmtudaginn 24. mars n.k.