John Swedenmark hlaut Vigdísarverðlaunin

Þau góðu tíðindi bárust nýverið að sænski þýðandinn, ritstjórinn og rithöfundurinn John Swedenmark væri handhafi Vigdísarverðlaunanna 2026. Rektor Háskóla Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra afhentu honum verðlaunin við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands þann 12. nóvember síðastliðinn.

John Swedenmark hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 fyrir framlag sitt í þágu menningar og tungumála með bókmenntaþýðingum sínum. Hann nam norræn tungumál við háskólann í Uppsölum og hefur í áratugi verið helsti núlifandi þýðandi íslenskra bókmennta á sænsku, jafnframt því sem hann þýðir bókmenntir úr fleiri tungumálum, meðal annars samísku, frönsku og ensku. John er einnig mikilvirkur höfundur ritgerða um bókmenntir og menningargagnrýni. Auk rúmlega 50 útgefinna þýðinga liggja eftir hann ritgerðasöfnin Om Kritikmaskinen och andra texter (2009) og Baklängesöversättning och andra texter (2011).

John hefur jafnframt lagt lóð á vogarskálar bókmenntafélaga og tímarita. Árin 2004–2015 var hann menningarritstjóri LO-Tidningen/Arbetet; hann situr í ritstjórn Divan, tímarits um sálgreiningu og menningu; undanfarin 25 ár hefur hann verið sekreterare Gunnar Ekelöf-bókmenntafélagsins, og frá árinu 2015 hefur John setið í ritstjórn tímaritsins Karavan sem gefur út skáldskap frá öllum heimshornum. John Swedenmark hefur verið nefndur sendiherra íslenskra bókmennta í Svíþjóð og sæmdur viðurkenningum á borð við Fálkaorðu Forseta Íslands (2018), hlotið þýðingaverðlaun Sænsku akademíunnar (2019), heiðursverðlaunin Orðstír (2020), verðlaun Letterstedtska félagsins (2021), og þýðingaverðlaun akademíunnar Samfundet De Nio (2026).

Vigdísarverðlaunin eru árlega veitt einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs. Íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar, starfrækt undir merkjum UNESCO, efndu til Vigdísarverðlauna í tilefni af stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur vorið 2020, en þá voru jafnframt liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar. Stuðningur Vigdísar við mikilvægi tungumála og menningar hefur öðrum þræði einkennt ævistarf hennar, en hún er velgjörðarsendiherra tungumála hjá UNESCO (Mennta, menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna).

Rithöfundasambandið óskar John til hamingju með afar verðskuldaðan heiður og sendir honum bestu þakkir fyrir ómetanlegt framlag til bókmenningar!

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email